Spyr heilbrigðisráðherra hvers vegna Janssen-fólki sé mismunað Eiður Þór Árnason skrifar 11. janúar 2022 11:52 Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis. vísir/vilhelm Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum frá heilbrigðisráðherra um nýjar breytingar á reglum um sóttkví og einangrun. Beinist fyrirspurnin að því hvers vegna þær nái ekki til fólks sem fékk einn örvunarskammt í kjölfar bólusetningar með bóluefni Janssen.
Með breytingunum sem tóku gildi 7. janúar er einstaklingum sem eru þríbólusettir minnst fjórtán dögum áður en þeir eru útsettir fyrir smiti meðal annars heimilt að sækja vinnu, skóla og matvöruverslanir á meðan þeir eru í sóttkví. Nýju reglurnar ná sömuleiðis til tvíbólusettra sem hafa jafnað sig af Covid-19. Ólíkt öðrum bóluefnum sem notuð hafa verið hér á landi gegn Covid-19 fer bólusetning með bóluefni Janssen fram með einum skammti í stað tveggja. Fram kemur í bréfi Skúla Magnússonar, umboðsmanns Alþingis, til Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra að samkvæmt orðalagi nýrrar reglugerðar um sóttkví og einangrun vegna Covid-19 virðist þeir sem upphaflega voru bólusettir með bóluefni Janssen og þegið hafa einn örvunarskammt ekki falla undir áðurnefnda rýmkun á reglum um sóttkví. Spurning um meðalhóf og jafnræði Óskar umboðsmaður eftir upplýsingum um hvort til hafi staðið að gera þennan greinarmun á framkvæmd sóttkvíar bólusettra einstaklinga og þá hvaða gögn eða aðrar upplýsingar hafi legið til grundvallar mati heilbrigðisráðherra. Telur umboðsmaður að málið varði grunnreglur íslensks réttar um jafnræði og meðalhóf og þær kröfur sem gera verði á þeim grundvelli til setningar stjórnvaldsfyrirmæla með heimild í sóttvarnalögum. Að fengnum svörum ráðuneytisins hyggst umboðsmaður taka ákvörðun um hvort tilefni sé til að taka málið til nánari athugunar. Óskað er eftir því að skýringar heilbrigðisráðuneytisins berist eigi síðar en 18. janúar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Fleiri fréttir Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Sjá meira