Richarlison byrjar með látum og Mexíkó pakkaði Frakklandi saman Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. júlí 2021 13:31 Richarlison skoraði þrennu í dag. Toru Hanai/Getty Images Ólympíuleikarnir í knattspyrnu karla hófust í dag með átta leikjum. Af nægu er að taka en helst það að frétta að Richarlison skoraði öll mörk Brasilíu í 4-2 sigri á Þýskalandi, Mexíkó vann 4-1 sigur á Frakklandi og Ástralía lagði Argentínu 2-0.
Um er að ræða U-23 ára landslið þjóðanna sem taka þátt en þrír eldri leikmenn mega vera í hverju liði fyrir sig. Þannig eru reynsluboltar á borð við Dani Alves og Andre-Pierre Gignac á mótinu. Alves var fyrirliði Brasilíu sem virtist ætla að hefna fyrir tapið á HM 2014 er liðið mætti Þýskalandi. Richarlison skoraði eftir sjö mínútna leik og bætti við öðru marki á 22. mínútu leiksins. Staðan var orðin 3-0 eftir hálftíma og Richarlison kominn með þrennu. 1 - Richarlison's hat-trick for Brazil against Germany is the first treble scored by a Premier League player at the Olympic games. Golden. #Tokyo2020 pic.twitter.com/nTD4h8Gjg4— OptaJoe (@OptaJoe) July 22, 2021 Þannig var staðan í hálfleik en Matheus Cunha fékk kjörið tækifæri til að koma Brasilíu í 4-0 undir lok fyrri hálfleiks. Brasilía fékk vítaspyrnu en Cunha brást bogalistin. Nadiem Amiri minnkaði muninn á 57. mínútu en sex mínútum síðar fékk Maximilian Arnold, fyrirliði Þýskalands, sitt annað gula spjald í leiknum og þar með rautt. Það virtist bara hvetja Þjóðverja áfram en Ragnar Ache minnkaði muninn á 83. mínútu og staðan orðin 3-2. Paulinho slökkti vonir Þjóðverja eftir að þeir höfðu lagt allt í sölurnar til að jafna leikinn. Skorðai hann á 94. mínútu og tryggði 4-2 sigur Brasilíu. Andre-Pierre Gignac skoraði eina mark Frakklands sem beið afhroð gegn Mexíkó. Eftir markalausan fyrri hálfleik komu Ernesto Vega og Francisco Cordova Mexíkó 2-0 yfir áður en Gignac minnkaði muninn. Sá franski spilar í Mexíkó og bað stuðningsmenn liðsins afsökunar eftir markið. Andre-Pierre Gignac has played in Liga MX for six years and is Tigres all-time top scorer.He scored a penalty against Mexico in the Olympics and apologised during his celebration pic.twitter.com/BVt3ln1mMy— B/R Football (@brfootball) July 22, 2021 Carlos Antuna og Eduardo Aguirre bættu við mörkum fyrir Mexíkó undir lok leiks og tryggðu 4-1 stórsigur Mexíkó. Þá vann Ástralía 2-0 sigur á Argentínu þökk sé mörkum Lachlan Wales og Marco Tilo. Hart var barist í leiknum en alls fóru 12 gul spjöld og eitt rautt á loft í leiknum. Alls lauk þremur leikjum með 1-0 sigri í dag: Japan vann Suður-Afríku, Nýja-Sjáland vann Suður-Kóreu og Rúmenía vann Hondúras. Fílabeinsströndin vann 2-1 sigur á Sádi-Arabíu en Egyptaland og Spánn gerðu markalaust jafntefli.
Fótbolti Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti Deandre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli Körfubolti Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Enski boltinn Aron Einar og Arnór minnast systur sinnar sem lést langt fyrir aldur fram Sport Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar Fótbolti „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Sveindís mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir meiðsli FH-ingar kynna besta lið sögunnar Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Stórleikur á Samsung-vellinum og meistararnir fara í Mosó Rúnar Már fann neistann Ánægjulegar myndir af Cecilíu Rán Börn Maradona vilja flytja jarðneskar leifar hans Eftirminnileg Skotlandsferð FC Sækó: Spiluðu við Celtic og heimsóttu Hampden Park Di María ákveðinn að snúa ekki aftur heim eftir morðhótanir Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki „Við áttum slæman dag og þær góðan dag“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Keflavík 4-2 | Nýliðarnir nældu í sigur og eru enn ósigraðir Leverkusen lætur ekki undan og lagði Roma á útivelli Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Sjá meira