fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
433Sport

Sancho hefur engan áhuga á að spila fyrir Manchester United

Victor Pálsson
Sunnudaginn 5. maí 2024 13:00

Jadon Sancho og Marcus Rashford / Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jadon Sancho hefur engan áhuga á því að snúa aftur til Manchester United eftir tímabilið en frá þessu greina enskir miðlar.

Sancho var lánaður til Dortmund í janúarglugganum og hefur staðið sig virkilega vel með sínu fyrrum félagi.

Sancho kom til United frá Dortmund á sínum tíma en stóðst í raun aldrei væntingar á Old Trafford.

Nú er greint frá því að Englendingurinn sé ekki að horfa til Manchester en samband hans og Erik ten Hag, stjóra United, er alls ekki gott.

Lánssamningur Sancho rennur út eftir um mánuð en hann vonast innilega til að vera hluti af öðru verkefni á næsta tímabili.

Ólíklegt er að Dortmund geti keypt Sancho aftur en hann var seldur fyrir 73 milljónir punda fyrir um tveimur árum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tvö stórlið á Ítalíu vilja kaupa Greenwood í sumar

Tvö stórlið á Ítalíu vilja kaupa Greenwood í sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sakaður um að hafa dópað og nauðgað konu – Þarf að hitta geðlækni

Sakaður um að hafa dópað og nauðgað konu – Þarf að hitta geðlækni
433Sport
Í gær

Slokknað í áhuga Real Madrid sem snýr sér að öðrum bakverði

Slokknað í áhuga Real Madrid sem snýr sér að öðrum bakverði
433Sport
Í gær

Hart strax búinn að landa starfi eftir ferilinn

Hart strax búinn að landa starfi eftir ferilinn