Inter og Chelsea búin að semja um Lukaku

Romelu Lukaku er að skipta úr Chelsea yfir í Inter …
Romelu Lukaku er að skipta úr Chelsea yfir í Inter Mílanó. AFP/Glyn Kirk

Ítalska knattspyrnufélagið Inter Mílanó og Chelsea á Englandi hafa komist að samkomulagi um lánssamning framherjans Romelu Lukaku. Mun hann því leika með Inter á næstu leiktíð.

Chelsea greiddi Inter 97,5 milljónir punda fyrir Lukaku fyrir síðustu leiktíð, en Belginn náði sér ekki almennilega á strik í London. Hann lýsti svo yfir áhuga sínum á að snúa aftur til Inter í viðtali í lok síðasta árs.

Inter greiðir um átta milljónir evra fyrir lánið og mun Belginn lækka töluvert í launum við félagaskiptin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert