Ekkert bendir til goss „akkúrat núna“

Keilir hulinn þoku. Sérfræðingar telja ólíklegt að gjósi á svæðinu …
Keilir hulinn þoku. Sérfræðingar telja ólíklegt að gjósi á svæðinu akkúrat núna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Hrinan í gær virðist gengin yfir,“ segir Þorvaldur Þórðar­son, pró­fess­or í eld­fjalla­fræði við Há­skóla Íslands, við mbl.is. Hann sat fund vísindaráðs almannavarna síðdegis og segir ekkert benda til goss „akkúrat núna“.

Áfram er gert ráð fyrir skjálftavirkni á Keilis-svæðinu en hún virðist hafa færst aðeins suðvestur í átt að Fagradalsfjalli í dag. Þorvaldur segir hrinuna nú í þeim farvegi sem hún var fyrir svokallaðan óróapúls í gær.

Ef staðan núna er borin saman við hvernig hún var fyrir sólarhring eru þá mun minni líkur á gosi?

„Það er ekkert sem bendir til þess að það sé að koma gos akkúrat núna,“ segir Þorvaldur. Svo virðist sem óróahrinan í gær tengist aukinni innspýtingu á kviku í kerfinu í stuttan tíma.

Þótt það gjósi ekki „akkúrat núna“ eins og Þorvaldur orðar það segir hann eitt öruggt:

„Það kemur að því að það gýs en það virðist ekki vera að koma alveg á núinu. Það mun gjósa á Reykjanesi, það er alveg á hreinu. Þetta er virkt svæði og við þurfum að læra að búa með þessu. Hvenær gýs aftur? Það er ómögulegt að segja til um það.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert