Jakkafataklæddir ungherrar til friðs á Íslandi Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. júlí 2022 20:01 Embla Rún Skarphéðinsdóttir og Díana Ýr Reynisdóttir vaktstjórar í Laugarásbíó. Til hægri má sjá skjáskot af ungum herramönnum sem mættu prúðbúnir á Skósveinana í kvikmyndahúsinu á dögunum. Vísir/Bjarni Nýjasta teiknimyndin um skósveinana nýtur nú óvæntra vinsælda meðal eldri hópa, þökk sé óvenjulegum færslum á samfélagsmiðlum. Ekki hefur þótt ástæða til að banna hópana í kvikmyndahúsum hér á landi eins og sums staðar í heiminum.
Hinir óborganlegu skósveinar, minions á frummálinu, og leiðtogi þeirra Grú eru í grunninn ætlaðir börnum. En nú virðist hafa orðið örlítil breyting þar á. Hálfgerð bylting hefur orðið til í kringum nýjustu kvikmyndina Skósveinarnir: Grú rís upp á samfélagsmiðlum. Heilu vinahóparnir, gjarnan klæddir í jakkaföt, flykkjast í bíó - og birta af því myndbönd eins og þau sem sjá má í meðfylgjandi frétt. Vaktstjórar í Laugarásbíó segja vart hafa þverfótað fyrir slíkum hópum nýliðna frumsýningarhelgi. „Fólk á öllum aldri var að mæta í jakkafötum, hafa gaman. Það verður að nýta þessi jakkaföt!“ segir Embla Rún Skarphéðinsdóttir, annar vaktstjóranna. Alveg sloppið við leiðindi Kvikmyndin sló met vestanhafs um helgina, hún er orðin sú aðsóknarmesta yfir þjóðhátíðardagshelgi. Og hér heima var frumsýningarhelgin raunar sú næstsöluhæsta frá upphafi fyrir teiknimynd. En heimsóknir jakkafataklæddra vinahópa vekja alls ekki lukku í hvívetna. Í Bretlandi hafa kvikmyndahús gripið til þess að banna ungherra í umræddum erindagjörðum vegna óláta. Í Laugarásbíó hefur þess ekki þurft. „Fólkið er að fagna, bæði í byrjun og lok myndar, en það er ekki með læti á sýningunni sjálfri. Við höfum sloppið við það. En það eru allir að njóta í botn,“ segir Díana Ýr Reynisdóttir, vaktstjóri. Þær muna hvorugar eftir viðlíka vinsældum á löngum starfsferli. „Þessir litlu gulu kallar eru svo fyndnir. Þannig að það eru bara allir að mæta á myndina. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta er svona,“ segir Díana.
Bíó og sjónvarp Samfélagsmiðlar Mest lesið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Tróð upp í Norræna partýinu Lífið Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Tónlist „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Fleiri fréttir Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Sjá meira