Fóru út að borða og fá 2,3 milljóna króna sekt Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 10. apríl 2021 22:49 Parísarbúar virðast óþreyjufullir og vilja komast aftur út á lífið. Getty/Kiran Ridley Meira en 100 gestir á veitingastað í París hafa verið sektaðir fyrir að hafa brotið sóttvarnareglur. Þá hefur veitingastjórinn á staðnum verið handtekinn vegna málsins.
Lögreglumenn voru kallaðir út eftir að mikil læti bárust frá veitingastaðnum og komu þeir að þéttsetnum staðnum. Öll fyrirtæki, sem ekki teljast sem nauðsynleg, eiga að vera lokuð samkvæmt sóttvarnareglum. Lögreglan í Frakklandi hóf fyrr í vikunni viðamikla rannsókn vegna veitingastaða sem sagðir eru bjóða gestum inn fyrir sínar dyr þrátt fyrir takmarkanir. Kampavín og kavíar Í síðustu viku birti sjónvarpsstöðin M6 myndbandsupptökur sem sagðar eru vera af veitingastað sem átti að vera lokaður. Myndavélin var falin og sjást gestir borða kavíar, drekka kampavín og trufflur á fínum veitingastað. Þá heyrast veitingamenn segja gestum að þeir geti tekið niður vitgrímur á veitingastaðnum. Í kjölfarið skipaði innanríkisráðherra Frakklands, Gérald Darmanin, lögreglunni að rannsaka slíkar samkomur – sem ganga þvert gegn sóttvarnareglum vegna kórónuveirufaraldursins – og sagði slíkar samkomur óásættanlegar. Síðast á föstudag þurfti lögregla að grípa inn í þegar í ljós kom að meira en 110 manns voru saman komin á veitingastað í 19. hverfi borgarinnar. Háar fjárhæðir og fangelsisvist Brjóti fólk sóttvarnareglur í Frakklandi getur það átt yfir höfði sér allt að árs langa fangelsisvist og 15 þúsund evra sekt, sem samsvarar um 2,3 milljónum íslenskra króna. Með sóttvarnabrotum stefni fólk lífi annarra í hættu. Gestir veitingastaðarins gætu því átt von á himinháum sektum en við gæti bæst 135 evru, eða um 20 þúsund króna, sekt fyrir að virða ekki útivistarbann, og aðra 135 evru sekt fyrir að bera ekki grímur fyrir vitum. Útbreiðsla faraldursins í Frakklandi virðist lítið hægja á sér og eftir nokkrar erfiðar vikur voru hertar takmarkanir settar á um land allt. Yfirvöld óttuðust að héldi faraldurinn áfram á þeirri leið sem hann var gætu sjúkrahús átt það á hættu að geta ekki haldið í við fjölda sjúklinga. Allir skólar og ónauðsynlegar búðir hafa lokað og útgöngubann er í gildi á milli klukkan 19 og 06. Meira en fimm milljónir hafa smitast af kórónuveirunni í Frakklandi og minnst 98.202 dáið af völdum hennar.
Frakkland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Fleiri fréttir Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent