„Krakkar! Þið megið fara af stað,“ sagði ráðherra og slánni var lyft Kristján Már Unnarsson skrifar 25. október 2020 17:24 Vegamálastjóri og samgönguráðherra klappa í höfuðstöðvum Vegagerðarinnar í Reykjavík þegar slánni er lyft við gangamunna Dýrafjarðarganga. Rútan ók þá af stað í vígsluferðina með skólabörnin á Þingeyri og Gunnar snjómokstursmann um borð. Vegagerðin „
Nú er akkúrat tækifæri til þess að lyfta slánni, opna Dýrafjarðargöng formlega. Og ég segi bara: Til lukku og megi þau heppnast vel og verða til mikillar blessunar öllum sem um þau fara,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra í símtalinu til Vegagerðarmanna á Ísafirði þegar hann gaf þeim fyrirmæli um að opna göngin um kl. 14.20 í dag. „Krakkar! Þið megið fara af stað. Og enn einn Gíslinn. Þetta er skrýtin opnun,“ sagði ráðherrann og Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri bauð viðstöddum að klappa í höfuðstöðvum Vegagerðarinnar í Reykjavík. Stór hvít rúta með nemendur grunnskólans á Þingeyri og snjómokstursmanninn Gunnar Gísla Sigurðsson um borð var fyrst til að aka í gegn og fór þannig vígsluaksturinn þessa 5,6 kílómetra úr Dýrafirði yfir í Arnarfjörð. Sumir flögguðu íslenska fánanum á bílum sínum þegar þeir fögnuðu opnun Dýrafjarðarganga.Vegagerðin Löng bílalest beið beggja vegna og áætluðu Vegagerðarmenn á vettvangi að milli 250 og 260 bílar hafi ekið í gegn á eftir rútunni. „Allir fóru fram og til baka þannig að það hafa örugglega vel yfir fimmhundruð bílar farið um göngin á fyrsta hálftímanum,“ sagði Guðmundur Björgvinsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Ísafirði. Áætlað er að bílalestin sem beið Dýrafjarðarmegin hafi verið hátt í tveggja kílómetra löng.Vísir/Hafþór Gunnarsson „Það var bros á hvers manns vör og mikil gleði,“ bætti Guðmundur við og sagði þetta upphafið að nýjum tímum á Vestfjörðum. Sumir höfðu fána á bílum sínu og víða mátti sjá flaggað í byggðum Vestfjarða. Guðmundur kvaðst vita til þess að sumir hafi komið langt að. Fólk hafi ekið frá Hólmavík og meira segja hafi fólk komið akandi alla leið úr Reykjavík gagngert til að vera við opnun jarðganganna. Hér má sjá á myndbandi Vegagerðarinnar þegar samgönguráðherra gaf fyrirmæli um að Dýrafjarðargöng skyldu opnuð umferð:
Dýrafjarðargöng Ísafjarðarbær Samgöngur Umferðaröryggi Byggðamál Tengdar fréttir Dýrafjarðargöng opin fyrir umferð Í dag klukkan 14 verða Dýrafjarðargöng opnuð. Vegna samkomutakmarkana verður opnunin með óhefðbundnum hætti, en henni verður streymt beint hér á Vísi. 25. október 2020 13:00 Síðasti snjómokarinn og börn á Þingeyri opna Dýrafjarðargöng Grunnskólabörn á Þingeyri og Gunnar Gísli Sigurðsson, sem mokaði Hrafnseyrarheiði í síðasta sinn síðastliðið vor, verða þau fyrstu sem aka í gegnum Dýrafjarðargöng þegar þau verða opnuð á sunnudag. Athöfninni verður útvarpað og streymt á netinu. 23. október 2020 22:23 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fleiri fréttir Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Sjá meira
Dýrafjarðargöng opin fyrir umferð Í dag klukkan 14 verða Dýrafjarðargöng opnuð. Vegna samkomutakmarkana verður opnunin með óhefðbundnum hætti, en henni verður streymt beint hér á Vísi. 25. október 2020 13:00
Síðasti snjómokarinn og börn á Þingeyri opna Dýrafjarðargöng Grunnskólabörn á Þingeyri og Gunnar Gísli Sigurðsson, sem mokaði Hrafnseyrarheiði í síðasta sinn síðastliðið vor, verða þau fyrstu sem aka í gegnum Dýrafjarðargöng þegar þau verða opnuð á sunnudag. Athöfninni verður útvarpað og streymt á netinu. 23. október 2020 22:23