Tónlistarmaðurinn Floni gaf í gær út plötuna Demotape 01 sem samanstendur af lögum sem Floni átti í raun til á lager en hafði aldrei gefið út. Hann segir í fréttatilkynningu um plötuna að hann klári á þriðja hundrað tónverka á hverju ári og meirihluti þeirra komist aldrei í birtingu.
„Ég geri líklega á þriðja hundrað demólaga á hverju ári en í mesta lagi tíu þeirra rata á plötu þegar allt kemur til alls. Þau eru þá unnin lengra en hin verða eftir í skúffunni, og stundum er synd að lögin í skúffunni líti aldrei dagsins ljós. Stundum geyma þau eitthvað alveg sérstakt – og það gildir um lögin sem eru að koma út núna,“ segir Floni um plötuna.
Plötuna vann Floni sjálfur og nokkrir af fremstu lagahöfundum á Íslandi í dag; Young Nazareth, Mister sir, Tommy, Izleifur og Jökull Breki.
Sex lög eru á umræddri plötu; Fokkessushitup, Dansar vel, Hreinskilinn, Skinn við skinn, Slowup og Komdu þér í fíling. Lögin eru mismunandi en öll auðþekkjanleg og í takt við fastmótaðan og einstakan stíl Flona.
Lögin sex áttu upphaflega ekki að birtast eins og fyrr segir, en þrátt fyrir það gefa þau fyrri plötum lítið eftir.