Efast um getu landlæknis Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. júní 2021 12:00 Grímur Atlason er framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Vísir/Egill Geðhjálp gerir alvarlegar athugasemdir við getu landlæknisembættisins til að sinna eftirliti með réttindum sjúklinga. Samtökin kalla eftir óháðri úttekt á starfsemi allra deilda á geðsviði Landspítala.
Fram kemur í yfirlýsingu Geðhjálpar sem send var fjölmiðlum í morgun að í nóvember árið 2020 hafi fimm þáverandi og fyrrverandi starfsmenn öryggis- og réttargeðdeilda Landspítala komið á fund Geðhjálpar. Þeir hafi sagt frá alvarlegum atvikum í starfsemi deildanna gagnvart notendum þjónustunnar sem, að mati lögfræðings Geðhjálpar, kunni að varða hegningarlög. Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar telur að fá ætti óháðan aðila á borð við umboðsmann alþingis til að sinna eftirliti í málaflokknum í stað landlæknis. „Og þá erum við að tala um á stöðum þar sem fólk er vistað í langan tíma gegn sínum vilja. Viðbrögðin við ábendingum sem komu frá okkur í greinargerð eftir að starfsmenn leituðu til okkar í nóvember, gefa tilefni til þess að efast um getu embættisins til að sinna þessu eftirlitshlutverki,“ segir Grímur. Vilja „alvöru rannsókn“ Geðhjálp túlki viðbrögð embættisins á þann veg að ekki sé tekið mark á ábendingunum því þær séu settar fram undir nafnleynd. „Og að það sé einhvers konar afsökun fyrir því að taka ekki málið föstum tökum, að það sé eitthvað flókið að taka á málum? Auðvitað á að fara í alvöru rannsókn á því þegar svona alvarlegar ábendingar koma fram.“ Kjartan Hreinn Njálsson aðstoðarmaður landlæknis segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að embættið sé ekki reiðubúið að bregðast við bréfi Geðhjálpar að svo stöddu. Frumvarp heilbrigðisráðherra um réttindi sjúklinga og beitingu nauðungar er á dagskrá á fundi velferðarnefndar nú í morgun. Lagt er til í frumvarpinu að skýrt verði kveðið á um að beiting nauðungar gagnvart sjúklingum á heilbrigðisstofnunum verði bönnuð og að bannið nái einnig til fjarvöktunar. Gert er ráð fyrir að yfirlækni eða vakthafandi sérfræðilækni verði heimilt að víkja frá slíku banni í sérstökum einstaklingsbundnum tilfellum. Einnig er gert ráð fyrir að heimilt verði að beita nauðung í neyðartilvikum. „Hvernig er betra að setja það í lög þegar eftirlitið er ekkert? Það hefur ekkert breyst, og það er það sem er mjög slæmt,“ segir Grímur.
Heilbrigðismál Landspítalinn Geðheilbrigði Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Sjá meira