Selja húsnæðið sem hýsti Hlemm Square Eiður Þór Árnason skrifar 22. febrúar 2021 12:26 Hvíta húsið stendur beint fyrir aftan Hlemm Mathöll. Vísir/Vilhelm Húsnæðið á Laugavegi 105, sem áður hýsti Hlemm Square, hefur verið auglýst til sölu. Þar mátti lengi finna gistiheimili, hótelherbergi, veitingahús og bar en Hlemmur Square hætti rekstri í nóvember síðastliðnum.
Í auglýsingu Mikluborgar er húsinu lýst sem einu af kennileitum miðborgar Reykjavíkur og bent á að þar séu öll tilskilin leyfi til staðar fyrir áframhaldandi gisti- og veitingarekstri. Viðskiptablaðið greindi fyrst frá auglýsingunni en 1. hæð, 3. til 5. hæð og kjallari hússins er nú til sölu. Fram kom í janúar að eigendur húsnæðisins hafi óskað eftir því að fá að útbúa þar íbúðir en samkvæmt fasteignaauglýsingunni liggur fyrir jákvæð umsögn skipulagsyfirvalda um að breyta öllu húsnæðinu á Laugavegi 105 í litlar- og meðalstórar íbúðir, alls 46 til 48 talsins. Fóru fram á að húsnæðið yrði boðið upp Þjóðverjinn Klaus Ortlieb, sem var í forsvari fyrir Hlemm Square frá stofnun árið 2013, greindi frá því í nóvember að kórónuveirufaraldurinn hafi reynst rekstrinum erfið og ekki væri unnt að halda honum áfram. Ríkisskattstjóri fór í upphafi síðasta árs fram á að húsnæði félagsins Hostel LV 105 ehf. sem rak Hlemm Square og fleiri eignir þess yrðu settar á nauðungarsölu. Fram kom í fyrri umfjöllun Viðskiptablaðsins að Hostel LV 105 hafi tapað 45 milljónum árið 2018 og 34 milljónum árið áður. Félagið er að langstærstum hluta í eigu félagsins 105 Management Limited en Auðunn Már Guðmundsson fjárfestir á 10% í félaginu. Fréttin hefur verið leiðrétt: Í upphaflegri útgáfu sagði að Ríkisskattstjóri hafi farið fram á nauðungarsölu á eignum Hostel LV 105 ehf. í upphafi þessa árs. Hið rétta er að það var í janúar 2020.
Ferðamennska á Íslandi Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Sjö vilja taka við af Gunnari Viðskipti innlent Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Viðskipti innlent Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Viðskipti innlent Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Viðskipti innlent Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur Samstarf Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Sjá meira