Áttatíu herþotur yfir Gasa Samúel Karl Ólason skrifar 11. maí 2021 16:20 Margar loftárásir hafa verið gerðar á Gasa. AP/Hatem Moussa Her Ísraels tilkynnti skömmu fyrir fjögur í dag að áttatíu herþotur yrðu notaðar til að gera árásir á um 150 skotmörk á Gasa-ströndinni, einu þéttbýlasta svæði heims. Markmiðið væri að gera útaf við getu Hamas-Samtakanna til að skjóta eldflaugum á Ísrael.
Hundruðum eldflauga hefur verið skotið frá Gasa að Ísrael á undanförnum sólarhring. Ísraelar svöruðu því með umfangsmiklum loftárásum. Minnst 28 Palestínumenn hafa fallið í þeim og þar á meðal tíu börn. Palestínumenn segja minnst 152 hafa særst. Tveir Ísraelsmenn hafa fallið vegna eldflaugaárásanna og tugir eru sagðir hafa særst. Hidai Zilberman, talsmaður hers Ísraels tilkynnti aðgerðina í dag og tók hann fram að aðgerðum hersins á Gasa myndi ekki ljúka í dag. Var það í takt við yfirlýsingar Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra, og Benny Gantz, varnarmálaráðherra. Samkvæmt Times of Israel hefur herinn kallað út meðlimi varaliðs í suðurhluta landsins og sent liðsauka til nokkurrar herdeilda við Gasa, Gólanhæðir og víðar. Mikil spenna hefur verið í Jerúsalem síðustu daga. Spennuna má rekja til þess að Ísraelar ætla sér að reka Palestínumenn frá hverfi í Austur-Jerúsalem, sem landtökumenn hafa sölsað undir sig. Palestínumenn vilja að borgarhlutinn verði höfuðborg sjálfstæðs ríkis þeirra í framtíðinni en Ísraelar hafa hersetið svæðið frá 1967. Spennuna má einnig rekja til umsáturs ísraelskra lögregluþjóna um al-Aqsa moskuna í Jerúsalem og hefur komið til átaka lögregluþjóna við fólk þar. Hundruð eru slösuð eftir átökin. Sjá einnig: Mikil átök milli mótmælenda og lögreglu á Musterishæð AP fréttaveitan segir embættismenn í Egyptalandi reyna að miðla milli fylkinga, eins og þeir hafa ítrekað gert áður. Það hafi þó lítinn árangur borið hingað til. Ísraelar virðast hafa lagt sérstaka áherslu á að fella leiðtoga Hamas-samtakanna og Islamic Jihad. Herinn birti til að mynda myndband í dag af árás á fjölbýlishús þar sem einn leiðtogi IJ var sagður halda til. Raw Aerial Footage: This is the moment that the IDF & Israel Security Agency carried out a targeted strike against Islamic Jihad commander, Samah Abed al-Mamluk & other senior members of his unit. They were among those responsible for hundreds of rockets fired at Israelis. pic.twitter.com/3DLj2UVdCm— Israel Defense Forces (@IDF) May 11, 2021
Ísrael Palestína Hernaður Tengdar fréttir Minnst tuttugu látin í árásum Ísraelshers á Gasa Ísraelsher hefur gert loftárásir á Gasa-svæðið, þar sem minnst 20 hafa látist. Börn eru á meðal látinna. 10. maí 2021 23:07 Fjölda eldflauga skotið að Ísrael Tugum eldflauga hefur verið skotið frá Gasa að Ísrael og Jerúsalem í dag. Forsvarsmenn Hamas höfðu gefið yfirvöldum Ísraels frest til klukkan þrjú í dag, að íslenskum tíma, til að yfirgefa al-Aqsa moskuna á musterishæð. 10. maí 2021 16:07 Mikil átök milli mótmælenda og lögreglu á Musterishæð Palestínskir heilbrigðisstarfsmenn segja minnst 278 Palestínumenn hafa særst í átökum við ísraelska lögregluþjóna við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem í morgun. Þar af hafi minnst tugir þurft á sjúkrahús til aðhlynningar. 10. maí 2021 10:04 Fjöldi særður eftir átök við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem Ísraelskir lögreglumenn skutu gúmmíkúlum og blossasprengjum að Palestínumönnum sem köstuðu steinum og flöskum í hörðum átökum við al-Aqsa-moskuna á Musterishæðinni í Jerúsalem í gærkvöldi. Að minnsta kosti 163 Palestínumenn eru sárir og sex ísraelskir lögreglumenn. 8. maí 2021 08:02 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings Innlent Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Erlent Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Innlent Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Erlent Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Innlent „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Innlent Fleiri fréttir Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Sjá meira
Minnst tuttugu látin í árásum Ísraelshers á Gasa Ísraelsher hefur gert loftárásir á Gasa-svæðið, þar sem minnst 20 hafa látist. Börn eru á meðal látinna. 10. maí 2021 23:07
Fjölda eldflauga skotið að Ísrael Tugum eldflauga hefur verið skotið frá Gasa að Ísrael og Jerúsalem í dag. Forsvarsmenn Hamas höfðu gefið yfirvöldum Ísraels frest til klukkan þrjú í dag, að íslenskum tíma, til að yfirgefa al-Aqsa moskuna á musterishæð. 10. maí 2021 16:07
Mikil átök milli mótmælenda og lögreglu á Musterishæð Palestínskir heilbrigðisstarfsmenn segja minnst 278 Palestínumenn hafa særst í átökum við ísraelska lögregluþjóna við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem í morgun. Þar af hafi minnst tugir þurft á sjúkrahús til aðhlynningar. 10. maí 2021 10:04
Fjöldi særður eftir átök við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem Ísraelskir lögreglumenn skutu gúmmíkúlum og blossasprengjum að Palestínumönnum sem köstuðu steinum og flöskum í hörðum átökum við al-Aqsa-moskuna á Musterishæðinni í Jerúsalem í gærkvöldi. Að minnsta kosti 163 Palestínumenn eru sárir og sex ísraelskir lögreglumenn. 8. maí 2021 08:02