19 látnir eftir að rúta fór út af vegi

Slökkviliðsmenn við störf á vettvangi.
Slökkviliðsmenn við störf á vettvangi. AFP

Að minnsta kosti 19 lét­ust og 25 slösuðust þegar rútu var ekið út af vegi í Bangla­dess. Bíl­stjór­inn missti stjórn á rút­unni að morgni dags að staðar­tíma sem varð til þess að rút­an féll niður af hraðbraut.

Að minnsta kosti tólf eru al­var­lega slasaðir en farþeg­arn­ir voru send­ir á sjúkra­hús í höfuðborg­inni Dakka til aðhlynn­ing­ar.

Nærri 10 þúsund and­lát vegna bíl­slysa í fyrra

Mann­skæð bíl­slys eru sér­lega al­geng í Bangla­dess en það má meðal ann­ars rekja til gam­alla innviða og bíla­flota. Þá er einnig illa staðið að kennslu öku­manna, að því er fram kem­ur í frétt AFP um málið. 

Sam­kvæmt hags­muna­sam­tök­um farþega í Bagla­dess lét­ust 9.951 í bíl­slys­um þar í landi á síðasta ári.

Fjöldi fólks kom saman við slysstað.
Fjöldi fólks kom sam­an við slysstað. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert