Lögregla segir ekki hægt að útiloka að átt hafi verið við kjörgögn Sunna Sæmundsdóttir skrifar 20. október 2021 14:17 Á myndum úr myndbandsupptöku sem fylgja lögregluskýrslu sést fólk á gangi um salinn á ýmsum tímum eftir að talningu atkvæða lauk um klukkan sjö og þar til talning hófst að nýju. Lögreglan á Vesturlandi getur ekki fullyrt út frá upptökum úr öryggismyndavélum hvort átt hafi verið við óinnsigluð kjörgögn í talningarsalnum á Hótel Borgarnesi. Á upptökum sést fólk ganga inn og út úr salnum eftir að fyrri talningu lauk. Þetta kemur fram í lögregluskýrslu sem fréttastofa hefur undir höndum.
Í lögregluskýrslu er farið yfir að tvær eftirlitsmyndavélar séu í salnum og þrjár utan við innganga. Engin þeirra sýni hins vegar svæðið þar sem kjörgögn voru geymd á meðan yfirkjörstjórn var fjarverandi. Upptökurnar eru í vörslu lögreglu í tengslum við rannsókn á kæru Karls Gauta Hjaltasonar, oddvita Miðflokksins í Suðurkjördæmi, á talningunni. Lögregla hefur lokið þeirri rannsókn og líkt og greint var frá í morgun hefur meðlimum yfirkjörstjórnar verið boðið að ljúka málinu með sektargreiðslu - sem að minnsta kosti hluti þeirra hafnar. Í lögregluskýrslu kemur fram að rannsókn lögreglu hafi leitt í ljós að á því tímabili sem yfirkjörstjórn var fjarverandi hafi starfsfólk hótelsins gengið um salinn. Af upptökum af dæma virðast þau vinna ýmis tiltektar- og frágangsverk. Vegna sjónarhorns eftirlitsmyndavélanna hverfur starfsfólkið annað slagið úr mynd - allt frá því að vera úr mynd í nokkrar sekúndur og upp í tvær og hálfa mínútu. Lögregla segist ekki geta fullyrt að enginn hafi snert gögnin. Í skýrslunni segir: „Vegna þess að eftirlitsmyndavélar sýna ekki svæðið þar sem kjörgögn vorur geymd getur lögregla ekki fullyrt, af eða á, um hvort farið var að svæðinu þar sem kjörgögn voru geymd á meðan yfirkjörstjórn var fjarverandi.“ Líkt og fram hefur komið leiddi talningin til mikilla hræringa á jöfnunarmönnum þingflokka þrátt fyrir að þingstyrkur þeirra hafi ekki breyst. Tólf kærur hafa borist vegna þingkosninganna en undirbúningskjörbréfanefnd liggur nú yfir næstu skrefum í málinu og fundaði meðal annars í morgun. Að neðan má sjá myndir úr skýrslu lögreglu þar sem fólk sést í og við salinn á milli talninga. Gengið út úr salnum klukkna 07:10. Einstaklingur í salnum 07:11. Gengið inn í salinn 07:11. Þrír í salnum klukkan 07:12. Þrír í salnum klukkan 07:12. Í salnum klukkan 09:40. Í salnum klukkan 10:10. Tveir í salnum klukkan 11:30. Mynd tekin klukkan 11:59. Í salnum klukkan 11:59:57.
Alþingiskosningar 2021 Norðvesturkjördæmi Borgarbyggð Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Lögreglumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Fleiri fréttir Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Sjá meira