Missti meðvitund í hálftíma eftir höfuðhögg á fótboltavellinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2021 10:31 Victor Osimhen sést hér borinn meðvitundarlaus af velli. EPA-EFE/PAOLO MAGNI Nígeríumaðurinn Victor Osimhen hefur ekki haft heppnina með sér að undanförnu. Hann meiddist á öxl, fékk kórónuveiruna og rotaðist síðan í leik.
Osimhen var fluttur beint á sjúkrahús eftir að hafa fengið slæmt höfuðhögg í leik Atalanta og Napoli í ítalska fótboltanum á sunnudaginn. Osimhen var útskrifaður af sjúkrahúsinu í gær en hafði þá eytt sólarhring á sjúkrahúsi í Bergamo. Atalanta vann leikinn 4-2 en undir lok hans þá lentu þeir Victor Osimhen og Cristian Romero í óhugnanlegu samstuði. Osimhen lá eftir og var á endanum borinn af velli og síðan keyrður beint upp á sjúkrahús. Napoli star Victor Osimhen to remain in hospital after being knocked UNCONSCIOUS during defeat to Atalanta https://t.co/4ImhaBxglT— MailOnline Sport (@MailSport) February 22, 2021 Victor Osimhen er 22 ára gamall og landsliðsmaður Nígeríu. Hann hefur skorað 2 mörk í 10 leikjum í ítölsku deildinni á leiktíðinni. ESPN hafði það eftir manni nákomnum Osimhen að leikmaðurinn hafi verið í sjokki þegar hann horfði aftur á atvikið. „Hann trúði þessu ekki þegar þau sýndu honum upptöku af atvikinu. Honum leið eins og að heilinn sinn hafi verið endurræstur,“ sagði heimildarmaður ESPN. Margir fjölmiðlar hafa sagt frá því að Victor Osimhen hafi náð aftur meðvitund í sjúkrabílnum en heimildarmaður ESPN segir það ekki vera alveg rétt. „Hann sagði að hann hafi misst meðvitund í um þrjátíu mínútur. Það var ekki fyrr en þau komu upp á sjúkrahús sem hann áttaði sig á því hvað var að gerast í kringum hann. Það var þá sem þau sýndu honum upptökuna af atvikinu,“ sagði heimildarmaður ESPN. Napoli's Osimhen 'lost consciousness for 30 mins' https://t.co/jaobZsnyIY— Red Bun Football (@RBFutbolTweets) February 23, 2021 Þrátt fyrir allt þetta þá segir umræddur heimildarmaður ESPN að leikmaðurinn hafi fengið grænt ljós frá læknum sínum um að hann megi spila næsta leik Napoli sem er á móti Granada í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn. Það hefur gengið á ýmsu hjá Osimhen að undanförnu. Hann er enn að ná sér að fullu eftir axlarmeiðsli og fékk kórónuveiruna þegar hann fór heim til Nígeríu í jólafrí. Osimhen er annar Nígeríumaðurinn sem hnígur niður eftir að hafa fengið höfuðhögg. Á síðasta tímabili missti Taiwo Awoniyi einnig meðvitund eftir að hafa fengið höfuðhögg í leik með Mainz 05.
Ítalski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið Scottie Scheffler fer fyrir dómstóla í byrjun júní Golf Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Enski boltinn Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Sport „Mér finnst ég vera besti leikmaðurinn á Íslandi“ Körfubolti Anníe Mist: Hver veit hvar ég verð eftir eitt ár Sport Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Íslenski boltinn Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Fótbolti Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér Fótbolti Völdu Albert í lið ársins Fótbolti Wembanyama fylgir í fótspor goðsagna Körfubolti Fleiri fréttir Sara Björk ekki áfram hjá Juventus Rashford líka skilinn eftir heima Tveir leikir á Akureyri og bikarmeistararnir lentu á móti Fylki Sagður vera búinn að henda Henderson út úr enska landsliðinu Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Toni Kroos hættir eftir EM í sumar Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Völdu Albert í lið ársins Tuchel daðrar við Man United og Chelsea Juventus skoraði þrjú á átta mínútum og bjargaði stigi Tel að ég geti hjálpað liðinu að ná í fleiri sigra Uppgjör og viðtöl: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús „Okkar langar rosalega að klífa upp töfluna“ Hlín á skotskónum og Guðrún vann toppslaginn Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Sverrir Ingi á skotskónum í ótrúlegum leik Liverpool staðfestir komu Slot Víkingarnir fyrrverandi öflugir í Noregi „Hann þekkir mig örugglega betur en ég sjálfur“ Rodri gagnrýnir hugarfar Arsenal manna: Þar liggur munurinn Jafnmörg mörk og rauð spjöld í Vestmannaeyjum Dagný framlengir samning sinn við West Ham Hildur, María og Lára urðu að sætta sig við silfur í bikarúrslitaleiknum Fékk rautt spjald fyrir brot á Sveindísi sem fór meidd af velli Draumainnkoma Sævars Atla breytti leiknum Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum Mikel Arteta missti af möguleikanum Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Sjá meira