Fækkar um einn á spítalanum

Meðal­ald­ur þeirra sem liggja inni með Covid-19 er 64 ár.
Meðal­ald­ur þeirra sem liggja inni með Covid-19 er 64 ár. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

42 sjúk­ling­ar liggja inni á Land­spít­ala með Covid-19 og hefur fækkað um einn frá því í gær. Sex þeirra eru á gjör­gæslu og fjór­ir þeirra í önd­un­ar­vél.

Meðal­ald­ur þeirra sem liggja inni með Covid-19 er 64 ár. 

Þetta kemur fram á vef spítalans.

8.076 sjúklingar eru í Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.621 barn.

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 327 innlagnir vegna veirunnar á Landspítala.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert