Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Magnús Jochum Pálsson skrifar 30. apríl 2024 18:28 Nýja stjarnan, til vinstri, hefur verið á bílum lögreglunnar frá 2018 en sú gamla, til hægri, verður áfram á einkennisbúningum lögregluþjóna. Vísir/Vilhelm Lögreglumerki sem umboðsmaður Alþingis óskaði skýringa á er ekki nýtt af nálinni heldur hefur það verið í notkun frá árinu 2018. Samskiptastjóri ríkislögreglustjóra segir gamla merkið hafa reynst illa til stafrænnar útgáfu og því hafi það verið uppfært.
Vísir fjallaði í morgun um erindi sem umboðsmaður Alþingis sendi ríkislögreglustjóra. Þar óskaði hann skýringa á nýju lögreglumerki sem sé hvergi að finna í reglugerðum og gerði athugasemdir við útbúnað sérsveitar ríkislögreglustjóra. Samskiptastjóri ríkislögreglustjóra segir breytingar á merki lögreglu lengi hafa staðið til. Stjarnan sem um er rætt sé hins vegar ekki ný. „Þessi umræða er ekki ný af nálinni. Þetta hefur verið til umræðu lengi, ásýnd lögreglu, litur og lögreglustjarna frá 1930 hafa verið til skoðunar í mörg ár og sömuleiðis vinnan við breytingar á hönnun stjörnunnar og litapallettu lögreglu,“ segir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. „Til að mynda voru nýjar merkingar á ökutækjunum okkar kynntar snemma árs 2018 og voru sérstakar reglur um breytingar undirritaðar sama ár af þáverandi ríkislögreglustjóra,“ segir hún. Þetta er sama stjarna og kemur fyrir þar? „Já, bílarnir eru merktir með þessum stjörnum og hafa verið það frá 2018,“ segir Helena Rós. Gamla stjarnan stóðst ekki nútímakröfur Hver er ástæðan fyrir breytingunum? „Gamla stjarnan hefur reynst illa til stafrænnar útgáfu og þess vegna þótti mikilvægt að einfalda hana svo hún stæðist nútímakröfur. Þessi hönnunarvinna staðið mjög lengi yfir enda að mörgu að huga í þessum efnum,“ segir Helena. „Við erum mjög meðvituð um þessar breytingar og höfum undanfarna mánuði verið að vinna í að breyta og uppfæra nauðsynlegar reglugerðir í takt við breytingarnar og förum alveg að ljúka þeirri vinnu,“ segir hún. Merkingar á einkennisbúningum óbreyttar „Þrátt fyrir að þessi nýja stjarna sé notuð til merkinga á ökutækjum lögreglu og til stafrænnar notkunar, eins og bent er á í bréfi umboðsmanns, er vert að nefna að merkingar á einkennisbúningum hafa haldist í óbreyttri mynd,“ segir Helena. „Merki sérsveitarinnar sem sýna vængina voru tekin upp 2007 og gráu merkin árið 2015 sem voru svo staðfest aftur árið 2019 með reglum sem ríkislögreglustjóra er heimilt að setja.“ „Að öðru leyti munum við fara yfir þessa fyrirspurn umboðsmanns Alþingis og svara þeim spurningum sem hann setur þar fram fyrir tilsettan tíma og munum um leið gera þau gögn opinber,“ segir Helena að lokum.
Lögreglan Umboðsmaður Alþingis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Innlent Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Erlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Lögreglan lýsir eftir fimmtán ára gamalli stúlku Innlent Fleiri fréttir Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsir eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Sjá meira