Sigvaldi valinn maður leiksins

Sigvaldi Björn Guðjónsson með viðurkenninguna eftir að hafa verið útnefndur …
Sigvaldi Björn Guðjónsson með viðurkenninguna eftir að hafa verið útnefndur maður leiksins í kvöld. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Hægri hornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson var valinn maður leiksins eftir að hann skoraði fimm mörk og var markahæstur allra í 28:24-sigri Íslands á Portúgal á EM 2022 í Búdapest í Ungverjalandi í dag.

Evrópska handknattleikssambandið, EHF, veitir þessi verðlaun og tilkynnti um að Sigvaldi Björn hafi hlotið verðlaunin að þessu sinni að leiknum loknum.

Sigvaldi Björn var afar drjúgur í íslensku sókninni þar sem hann skoraði mörkin fimm úr sjö skotum. Eitt varði Gustavo Capdeville, markvörður Portúgals, og eitt fór í stöngina.

Sigvaldi Björn Guðjónsson skorar eitt af fimm mörkum sínum í …
Sigvaldi Björn Guðjónsson skorar eitt af fimm mörkum sínum í kvöld. Ljósmynd/Szilvia Micheller
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert