Rafíþróttir

Í beinni: Vodafonedeildin í CS:GO, viðureign erkifjanda

Bjarni Bjarnason skrifar
Vodafonedeildin sett

Úrvalsliðin etja kappi í Vodafonedeildinni í CS:GO í kvöld. Fjórtánda umferð deildarinnar verður leikin í kvöld og eru spennandi viðureignir í vændum.

Kvöldið byrjar með leik KR og Exile. Liðsmenn Exile fundu taktinn í síðasta leik er þeir lögðu XY. Hinsvegar eru KR, sem sigruðu topp lið deildarinnar Dusty í síðasta leik sjóðandi heitir. Hafa Exile menn því brattan að sækja er þeir heimsækja KR í kvöld.

Erkifjendurnir HaFiÐ og Dusty takast á í millileik kvöldsins. Síðustu viðureign sigraði Dusty með yfirburðum. En mikill stígandi hefur verið á spilamennsku Hafsins nú í síðari hluta deildarinnar því ljóst að þetta verður hörku leikur sem við fáum í kvöld.

Lokaleikur kvöldsins er XY gegn Fylki. Fylkismenn hafa spilað frábærlega í deildinni í haust og eru komnir með verðskuldaðann miða á stórmeistaramótið. Það er til mikils að vinna fyrir XY því með sigri tryggja þeir sér sæti í deildinni á næsta tímabili en hætta annars á umspil.

Fyrsta viðureign kvöldsins hefst kl 19:30 og verður sýnd á Stöð 2 esport og hér á Vísi.

Leikir kvöldsins verða samkvæmt dagskrá hér að neðan.

19:30 KR - Exile

20:30 HaFiÐ - Dusty

21:30 XY - Fylkir

Útsending er hefst kl 19:15 og stendur yfir fram eftir kvöldi og hægt er að fylgjast með henni hérna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×