Svaf ölvunarsvefni í vitlausu húsi

Tilkynnt var um innbrot og þjófnað í miðbænum í dag.
Tilkynnt var um innbrot og þjófnað í miðbænum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögregla var kölluð í stigagang í Kópavogi í dag, þar sem maður svaf ölvunarsvefni. Hafði maðurinn farið húsavillt og var hann aðstoðaður við að komast heim til sín, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Í Kópavogi var einnig tilkynnt um innbrot og þjófnað í bifreið þar sem verkfærum var stolið en gerandi er ókunnur.

Í miðbænum var tilkynnt um innbrot og þjófnað og var óvelkomnum manni vísað út úr verslun í hverfi 103.

Veggjakrot var tilkynnt í Vesturbænum en gerandi er ókunnur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert