Átök á Pablo Discobar: Rekstrarstjóri réðst að gesti með vínflösku Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. október 2021 17:16 Fjölmörg vitni urðu að árásinni við Ingólfstorg í gær. Gestirnir þrír segja um hatursglæp að ræða. Eigandi Pablo Discobar segir rekstrarstjórann hafa misst stjórn á skapi sínu og sé miður sín. Vísir Rektrarstjóri Pablo Discobar, skemmtistaðar sem nýlega var opnaður að nýju eftir eldsvoða í mars í fyrra, missti stjórn á skapi sínu í gærkvöldi. Lögreglan er með málið til rannsóknar. Rekstrarstjórinn er kominn í ótímabundið leyfi frá störfum.
DV greindi fyrst frá málinu í dag. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu voru þrír vinir af erlendu bergi brotnir að skemmta sér á staðnum í gærkvöldi. Þeim sinnaðist við rekstrarstjórann um það leyti sem staðnum var lokað klukkan eitt. Beðnir um að yfirgefa staðinn við lokun Þeir lýsa því þannig að þeir hafi verið að skemmta sér vel en svo hafi karlmaður beðið þá um að yfirgefa staðinn. Þeir hafi verið ósáttir við að karlmaður, sem væri ekki klæddur sem starfsmaður, ætlaði að segja þeim til verka. Starfsmaðurinn hafi sagst ráða ríkjum á skemmtistaðnum og þeir ættu að drulla sér út. Þeir hafi beðið um fallegri beiðni um að yfirgefa staðinn og útskýrt að þeir hafi ekki vitað að hann væri eigandinn. Hann hafi á endanum brotið bílrúðu með vínflösku og um leið slasað einn þremenninganna þar sem þeir óku í burtu. Þeir hafi tilkynnt málið til lögreglu og hinn slasaði hafi leitað á bráðamóttöku. Þeir vilja meina að um hatursglæp sé að ræða vegna erlends uppruna þeirra. Enginn dyravörður á vakt Jón Bjarni Steinsson, eigandi Pablo Discobar, segir í samtali við Vísi hafði rætt málin við rekstrarstjórann. „Tómas var að skemmta sér í gærkvöldi en var ekki í vinnunni,“ segir Jón Bjarni og á við Tómas Núma Sigurðsson, rekstrarstjóra staðarins. Starfsfólki beri að láta gesti yfirgefa staðinn lögum samkvæmt þegar lokað sé klukkan eitt. Þremenningarnir, sem hafi verið með stæla, hafi ekki viljað hlýða fyrirmælum og þá hafi rekstrarstjórinn beðið þá um að yfirgefa staðinn. „Þeir lenda í útistöðum,“ segir Jón Bjarni og bendir á að þar sem það var miðvikudagur hafi enginn dyravörður verið á vakt til að sinna þessu verkefni. Einn gegn þremur „Honum tekst að lokum að koma þeim út með látum og veseni. Hann einn og þeir þrír,“ segir Jón Bjarni. Þegar búið hafi verið að henda öllum út hafi þremenningarnir ekið hjá í bíl, rennt niður rúðuna, hreytt einhverju í Tómas og tekið upp myndband. Myndbandið má sjá að neðan. „Hann missir bara stjórn á skapi sínu,“ segir Jón Bjarni. Það sé fullkomlega óásættanlegt en rétt að halda til haga að svona gerist ekki upp úr þurru. „En þú hagar þér ekki svona sem starfsmaður. Hann er kominn í leyfi þangað til annað kemur í ljós,“ segir Jón Bjarni. Engin þolinmæði fyrir svona rugli Fréttastofa náði ekki sambandi við Tómas Núma en Jón Bjarni sagði að honum væri mikið niðri fyrir og gerði sér grein fyrir mistökum sínum. Þá bendir hann á að þegar Tómas hafi heyrt að lögregla hafi mætt á vettvang hafi hann af sjálfsdáðum farið á lögreglustöð og gefið sig fram. „Ég er fjörutíu ára og hef núll þolinmæði fyrir svona rugli,“ segir Jón Bjarni. Hann bætir við að atvikið muni engin áhrif hafa á starfsemi Pablo. Þar verði opið í kvöld eins og venjulega.
Lögreglumál Næturlíf Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira