„Varnarlega gátum við gert betur en mér er eiginlega alveg slétt sama“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. desember 2022 21:35 Sigursteinn Arndal gat leyft sér að fagna í leikslok. Vísir/Hulda Margrét Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var að vonum ánægður eftir fimm marka sigur sinna mann gegn Selfyssingum í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 32-37. Hann segir að lokatölurnar gefi ekki rétta mynd af leiknum, enda var jafnt á öllum tölum fram á lokamínútur leiksins. „
Mér líður mjög vel eftir alla sigurleiki,“ sagði Sigursteinn eftir sigurinn á Selfossi í kvöld. „En það er rétt, lokatölurnar segja ekki mikið til um leikinn því þetta var mjög erfiður leikur á móti góðu Selfossliði og það var hátt tempó fram og til baka. Varnarlega gátum við gert betur en mér er eiginlega alveg slétt sama þessa stundina.“ FH-ingar náðu í tvígang þriggja marka forskoti í síðari hálfleik, en áttu í miklum erfiðleikum með að slíta sig frá Selfyssingum. „Ég veit ekki hvort það hafi farið um mig, en það var mjög erfitt að slíta þá frá okkur. Við vorum líka bara með unga útilínu sem gerði sín mistök, en ég er bara ofboðslega stoltur af þeim hvernig þeir kláruðu leikinn og sýndu þennan vilja sem þarf. Svo voru þeir bara eitursvalir á lokamínútunum.“ Þrátt fyrir að hafa leitt stærstan hluta leiksins byrjuðu FH-ingar leikinn ekki vel. Liðið lenti 4-0 undir og skoraði aðeins eitt mark úr uppstilltri sókn fyrstu tíu mínútur leiksins. Svo slæmt var það að Sigursteinn tók leikhlé eftir aðeins fjögurra mínútna leik. „Við vorum bara hálf flatir og vorum ekki á hundrað eins og þarf að vera hérna á Selfossi. En sem betur fer bættum við í og uppskárum góðan sigur.“ FH-ingar fara í Garðabæinn næstkomandi mánudag þar sem liðið mætir Stjörnunni. FH og Stjarnan mættust í fyrstu umferð Olís-deildarinnar þar sem Garðbæingar unnu öruggan sigur og Sigursteinn segir að sínir menn ætli sér að hefna fyrir það. „FH stefnir á sigur í öllum leikjum og nú fáum við viku til að ná okkur og undirbúa okkur hrikalega vel. Stjarnan er með frábært lið og við töpuðum fyrir þeim í fyrstu umferð þannig við eigum harma að hefna,“ sagði Sigursteinn Arndal að lokum.
Olís-deild karla FH UMF Selfoss Tengdar fréttir Leik lokið: Selfoss - FH 32-37 | Áttundi sigur FH í röð staðreynd FH gerði góða ferð á Selfoss og vann þar fimm marka sigur í Olís deild karla í handbolta. FH hefur þar með unnið átta leiki í röð. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 5. desember 2022 21:00 Mest lesið Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Í beinni: Lokaumferðin í enska | Hvaða lið verður meistari? Enski boltinn Guðni Valur Norðurlandameistari Sport Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Sjá meira
Leik lokið: Selfoss - FH 32-37 | Áttundi sigur FH í röð staðreynd FH gerði góða ferð á Selfoss og vann þar fimm marka sigur í Olís deild karla í handbolta. FH hefur þar með unnið átta leiki í röð. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 5. desember 2022 21:00