Anníe Mist getur komist á heimsleika með fjórtán ára millibili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2023 06:30 Anníe Mist Þórisdóttir hefur æft vel og þykir líkleg til að tryggja sér heimsleikasæti. Instagram/@anniethorisdottir Óhætt er að segja að margir bíði spenntir eftir því að sjá hvað íslenska CrossFit konan Anníe Mist Þórisdóttir gerir á undanúrslitamótinu í Berlín en einstaklingskeppnin hefst í dag og þar verður barist um laus sæti á heimsleikunum í haust.
Spenningurinn einokast ekki aðeins við Ísland enda vill eflaust allur CrossFit heimurinn fá svar við því hvort Anníe Mist hafi sem þarf til til að verða sú fyrsta sem keppir í meistaraflokki á heimsleikum með fjórtán ára millibili. Anníe Mist keppti fyrst á heimsleikunum árið 2009 og frá 2010 til 2014 vann hún tvo heimsmeistaratitla og tvenn silfurverðlaun. View this post on Instagram A post shared by Morning Chalk Up (@morningchalkup) Anníe keppti síðast í einstaklingskeppni heimsleikana árið 2021 og náði þá þriðja sætinu sem var jafnframt í sjötta sinn sem hún kemst á verðlaunapall á leikunum. Anníe sá vinkonu sína Katrínu Tönju Davíðsdóttur tryggja sér sæti á sínum tíundu heimsleikum um síðustu helgi og komist Anníe þangað líka þá mun hún keppa á sínum þrettándu heimsleikum þar af í tólfta sinn í einstaklingssæti. Ellefu sæti eru í boði fyrir Evrópu og allar fjórar íslensku stelpurnar gera sig líklegar til að tryggja sér farseðilinn. Anníe náði sjötta besta árangrinum í fjórðungsúrslitunum og var þar einu sæti á eftir Þuríði Erlu Helgadóttur. Þuríður Erla getur tryggt sig inn á sína fjórðu heimsleika í röð en hún varð efst íslensku stelpnanna á heimsleikunum í fyrra. Þetta yrði hennar níundi heimsleikar komist hún alla leið. Augu margra verða einnig á Söru Sigmundsdóttur sem varð níunda í fjórðungsúrslitunum og hefur sýnt að undanförnu að hún sé á réttri leið í hóp þeirra bestu í heimi á ný eftir að hafa misst úr tvö ár vegna erfiðra hnémeiðsla og vandamálum tengdum þeim. Sara hefur ekki komist á síðustu tvo heimsleika og það eru liðin sex ár síðan hún endaði síðast meðal þeirra efstu á heimsleikum. Fyrst á dagskrá hjá Söru er að koma sér inn á heimsleikana. View this post on Instagram A post shared by Annie Thorisdottir (@anniethorisdottir) Sólveig Sigurðardóttir þarf að gera betur en í fjórðungsúrslitunum ætli hún að komast á aðra heimsleikana í röð. Aðeins hún og Þuríður Erla komust alla leið á heimsleikana af íslensku stelpunum í einstaklingskeppninni í fyrra. Sólveig endaði í sextánda sæti í fjórðungsúrslitunum og þarf því að hækka sig um sex sæti til að komast til Madison. Vonandi skilar það sér að hafa æft með Anníe Mist í undirbúningnum fyrir mótið. Björgvin Karl Guðmundsson varð annar í Evrópu í fjórðungsúrslitunum og hefur allt til alls til að tryggja sig inn á tíundu heimsleika sína í röð sem yrði magnaður árangur og tákn um hans ótrúlega stöðugleika í hópi þeirra bestu. Björgvin Karl hefur endað inn á topp tíu á heimsleikunum undanfarin átta ár. Í dag fara fram tvær greinar, sú fyrri nú lukkan 7.55 að íslenskum tíma en sú síðari klukkan hálf tvö í dag.
CrossFit Mest lesið Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“ Fótbolti „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn Stjarnan skellti tvisvar á Belichick: „Það er eins gott að þetta sé ekki grín“ Sport Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Handbolti Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Enski boltinn Dagskráin í dag: Brjálað að gera í Bestu deildinni Sport Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ Handbolti Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Körfubolti Fleiri fréttir Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“ Dagskráin í dag: Brjálað að gera í Bestu deildinni „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Stjarnan skellti tvisvar á Belichick: „Það er eins gott að þetta sé ekki grín“ Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Liverpool nær samkomulagi um Slot Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum Íslendingarnir nálgast fallið „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Helgi Áss nokkuð óvænt Íslandsmeistari í annað sinn Titilbaráttan endanlega úti eftir tap Söru og stallna Íslendingarnir áberandi í jafntefli Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Stöð 2 Esport hættir útsendingum Marta hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Víkingar fengu góða sumargjöf Leikmaður Newcastle tók meirapróf Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Sjá meira