Saman í skemmtigarði þrátt fyrir sögusagnir um skilnað

Fjölskyldan saman í Disneylandi.
Fjölskyldan saman í Disneylandi. Skjáskot/Shutterstock

Þrálátur orðrómur hefur verið lengi um yfirvofandi skilnað leikarahjónanna Tori Spelling og Dean McDermott. Vilja margir meina að nú sé orðrómurinn byggður á traustum grunni þar sem hvorugt þeirra bar giftingahring á fingri sér þegar sást til þeirra með allan barnahópinn í skemmtigarðinum Disneylandi fyrr í vikunni. Pagesix greinir frá.

Hjónin hafa opinberað að ýmis vandamál hafi verið í hjónabandinu í gegnum tíðina en þau hafa verið gift síðan árið 2006 og eiga fimm börn saman á aldursbilinu 4-14 ára. McDermott á eitt barn úr fyrra hjónabandi. Fjölmiðlar vestanhafs hafa greint frá því að Spelling sé að undirbúa sig fyrir forsjármál barnanna og hefur bæði sést og heyrst til hennar eiga í magnþrungnum símtölum hvað það varðar. Eru hjónin sögð sofa í sitthvoru herberginu og hafa gert það síðan í byrjun sumars. 

Fjölskyldan spókaði sig saman um skemmtigarðinn en Spelling virtist frekar þreytuleg þegar hún ýtti yngstu dótturinni á undan sér um allt í Mikka mús kerru. Þá hefur Spelling verið sú eina sem ákvað að taka þessa fjölskylduferð alla leið því hún var með spöng í hárinu með áföstum Mínu mús eyrum sem stóðu upp í loft. Fjölskyldufaðirinn virtist engar gleðilegar hliðar sýna miðað við myndirnar og bar hann sólgleraugu allan tímann. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Valdabarátta við vin gæti fengið þig til að breyta markmiðum þínum eða framtíðaráformum lítilsháttar. Komdu hugmyndum þínum á framfæri.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Valdabarátta við vin gæti fengið þig til að breyta markmiðum þínum eða framtíðaráformum lítilsháttar. Komdu hugmyndum þínum á framfæri.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Loka