Franski landsliðsmaðurinn með veiruna

Samuel Umtiti er með kórónuveiruna.
Samuel Umtiti er með kórónuveiruna. AFP

Franski knattspyrnumaðurinn Samuel Umtiti hefur verið greindur með kórónuveiruna og verður heimsmeistarinn ekki með Barcelona gegn Bayern München í Meistaradeildinni í kvöld. 

Var greint frá því í vikunni að ónefndur leikmaður Barcelona væri með veiruna og greindi félagið frá því á heimasíðu sinni að Umtiti væri sá smitaði. 

Er Umtiti einkennalaus, við góða heilsu og í einangrun. Var hann ekki í návígi við liðsfélaga sína og hafa tíðindin því ekki áhrif á leik Barcelona í kvöld. 

Hefur Umtiti aðeins spilað átján leiki með Barcelona á leiktíðinni og verið orðaður við brottför frá félaginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert