„Við hefðum eiginlega frekar átt að gefa honum humar“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. september 2021 14:16 Rostungurinn er farinn, en fékk þó allavega að borða. Anouar Safiani Rostungurinn sem heimsótti Höfn í Hornafirði í gær var að öllum líkindum ekki fullvaxinn. Heimamenn gáfu honum fisk að borða, en vistfræðingur sem kíkti á rostunginn í gær grínast með að útfrá mataræði rostunga og staðsetningar áningarstaðar hans hefði humar líklegar verið betri kostur.
Fjöldi fólks gerði sér ferð niður að bryggju á Höfn í gær þar sem stærðarinnar rostungur lá í mestu makindum á bryggjunni. Lilja Jóhannessdóttir, vistfræðingur hjá Náttúrustofu Suðausturlands, var ein af þeim sem gerði sér ferð til að skoða rostunginn í gær. Hún ræddi heimsóknina í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hún sagði að sést hafði til rostungsins við ósa Hornarfjarðarfljóts á laugardaginn. Telur hún líklegt að rostungurinn hafi elt bát inn til hafnar, áður en hann kom sér makindarlega fyrir á bryggjunni. „Mér finnst þetta stórmerkilegt. Þeir eru ekki algengir gestir hérna,“ sagði Lilja sem minntist komu rostungs árið 2013, en þá hélt viðkomandi til í og við Jökulsárlón. Hún segir erfitt að segja til um hvaðan rosturingurinn hafi komið, og því síður hvað hann sé að gera hér en flestir rostungar sem flækjast hingað koma frá austur-Grænlandi. Á myndum sem birtar voru í gær má sjá að búið var að henda fiskum í grennd við rostunginn, sem á endanum enduðu í maga dýrsins. „Hann gerði það að lokum, seinna um kvöldið var hann búinn að borða eitthvað af þessu. En það er nú ekki aðalfæðan hans, fiskur, komumst við svo að,“ sagði Lilja. Rostungurinn kom sér vel fyrir á bryggjunni.Kristrún Rut Rúnarsdóttir „Hann borðar aðallega botnhryggleysingja eins og skeljar og rækjur. Við hefðum eiginlega frekar átt að gefa honum humar,“ sagði Lilja hlæjandi enda Höfn þekkt sem humarhöfuðborg Íslands. Urraði ef fólk nálgaðist Sem fyrr gerðu margir sér ferð til að skoða rostunginn, sem lét þó í sér heyra ef einhver kom of nálægt. „Þeir hreyfa sig hratt þegar þeir fara af stað þótt hann virki nú óttalega rólegur þar sem hann liggur þarna. Svo kipptist hann oft við og var að urra á fólk ef það nálgaðist hann.“ Líklega var þó ekki um að ræða fullvaxið dýr. „Þetta er náttúrulega stærðardýr. Ég held að þetta eintak, maður gat kannski ekki mælt hann, maður nálgast hann ekki. Það er ekki öruggt að gera það. Ég hefði skotið á að hann væri kannski 600-800 kíló og einhverjir tveir metrar. Þeir geta orðið stærri, stærstu brimlarnir eru alveg upp í þrjá og hálfan metra og tonn að þyngd.“
Hornafjörður Dýr Sjávarútvegur Rostungurinn Valli Tengdar fréttir Stærðarinnar rostungur á Höfn í Hornafirði Íbúum Hafnar í Hornafirði hefur að öllum líkindum brugðið í brún þegar þeir sáu stærðarinnar rostung á bryggju í bænum. 19. september 2021 22:23 Rostungurinn virðist horfinn á braut Stærðarinnar rostungur sem gerði sig í gær heimankominn á Höfn í Hornarfirði og kom sér vel fyrir á bryggju í bænum virðist vera farinn. 20. september 2021 07:46 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Eldvörp líkleg næst Innlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Erlent Eldgosinu lokið eftir 54 daga Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Fleiri fréttir Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Sjá meira
Stærðarinnar rostungur á Höfn í Hornafirði Íbúum Hafnar í Hornafirði hefur að öllum líkindum brugðið í brún þegar þeir sáu stærðarinnar rostung á bryggju í bænum. 19. september 2021 22:23
Rostungurinn virðist horfinn á braut Stærðarinnar rostungur sem gerði sig í gær heimankominn á Höfn í Hornarfirði og kom sér vel fyrir á bryggju í bænum virðist vera farinn. 20. september 2021 07:46