Hló þegar hann var spurður hvort það væri mikilvægt að Trump mætti Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. desember 2020 12:46 Biden sagðist hafa mestar áhyggjur af því hvernig það liti út gagnvart heimsbyggðinni ef Trump mætti ekki þegar hann sver embættiseiðinn. Anthony Fauci verður meðal helstu ráðgjafa nýs Bandaríkjaforseta og mun jafnframt áfram sinna hlutverki sínu sem helsti sóttvarnasérfræðingur Bandaríkjanna. Þetta var meðal þess sem kom fram í viðtali CNN við Joe Biden og Kamölu Harris í gær.
Biden sagði enn fremur að hann myndi biðla til bandarísku þjóðarinnar um að bera grímu fyrstu 100 dagana eftir að hann tekur við forsetaembættinu. „Bara 100 dagar með grímu, ekki að eilífu. Eitt hundrað dagar. Og þá tel ég að við sjáum verulega fækkun,“ sagði hann. Covid-19 faraldurinn fer nú eins og eldur um sinu vestanhafs og Biden segist gera ráð fyrir að veiran verði hans helsta viðfangsefni fyrsta árið í Hvíta húsinu. Hann vinnur að því að skipa teymi sérfræðinga til að ráðleggja sér hvað þetta varðar og þá hyggst hann gefa út fyrirskipun um grímunotkum þar sem hann hefur vald til að koma henni á, t.d. í opinberum byggingum og flugvélum og rútum sem fara milli ríkja. Hyggst láta sjónvarpa bólusetningu sinni Bill Clinton, George W. Bush og Barack Obama hafa þegar sagt að þeir muni láta bólusetja sig fyrir framan myndavélar þegar að því kemur og í viðtalinu við CNN sagðist Biden munu gera það sömuleiðis. „Mér finnst forverar mínir hafa sett fordæmi með því að segja: Þegar það liggur fyrir að [bólefnið] er öruggt þá, að sjálfsögðu, látum við bólusetja okkur og það er mikilvægt að koma því til skila til bandarísku þjóðarinnar.“ Biden, sem hefur átt gott samstarf við marga repúblikana í öldungadeildinni, sagðist skilja af hverju þeir hefðu setið á sér með að koma opinberlega fram og óska sér til hamingju með sigurinn í forsetakosningunum. Margir hefðu þó haft samband á bakvið tjöldin. Trump að ákveða hvort hann mætir Biden hló þegar hann var spurður að því hvort það væri mikilvægt að fráfarandi forseti væri viðstaddur athöfnina þegar hann sver embættiseiðinn. Það væri Trump að ákveða hvað hann gerði og það skipti sig engu máli persónulega. Það „er mikilvægt að því leyti að við sýnum fram á endalok þessarar ringulreiðar sem hann hefur skapað; að það eigi sér stað friðsamleg valdaskipti þar sem mótherjarnir standa, takast í hendur og halda áfram,“ sagði Biden. Hann hefði fyrst og fremst áhyggjur af því hvaða skilaboð Bandaríkin væru að senda til heimsbyggðarinnar. Íranir megi ekki verða kjarnorkuveldi Um utanríkismál sagði nýkjörinn forseti erfitt að spá fyrir um hvaða áhrif morðið á íranska kjarnorkuvísindamanninum Mohsen Fakhrizadeh myndi hafa. Bandarísk yfirvöld telja að Ísrael hafi staðið að baki morðinu. Biden sagði eitt á hreinu: Íranir mættu ekki eignast kjarnorkuvopn en ljóst væri að Bandaríkjamenn gætu ekki farið þessa vegferð einir. „Þess vegna verðum við að vera hluti stærri hóps, sem tekur ekki bara á Íran heldur Rússlandi, Kína og mörgum öðrum málum.“ Ítarlega umfjöllun og myndskeið má finna á vef CNN.
Forsetakosningar í Bandaríkjunum Bandaríkin Joe Biden Donald Trump Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Sjá meira