Innlent

Fundu ekki kórónu­veiru á ís­lenskum minka­búum

Atli Ísleifsson skrifar
Alls eru níu minkabú starfandi á Íslandi. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.
Alls eru níu minkabú starfandi á Íslandi. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty

Matvælastofnun hefur tekið sýni á öllum minkabúum landsins vegna kórónuveirunnar og reyndust þau öll neikvæð. Fyrirskipaðar hafa verið hertar sóttvarnir á minkabúum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun, en alls eru níu minkabú starfandi á landinu. Sýni voru send í greiningu á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði á Keldum og hjá Íslenskri erfðagreiningu. Niðurstöður liggi nú fyrir og hafi þau öll verið neikvæð.

„Sýnin voru tekin úr dauðum minkum sem lógað var vegna árvissrar pelsunar. Þegar pelsun lýkur á minkabúum hefur minkastofn landsins minnkað í um 15 þúsund lífdýr sem bíða fram á vorið eftir að pörun hefjist.

Matvælastofnun hefur gert áætlun um reglubundnar sýnatökur í vetur á öllum minkabúum. Auk þess verða starfsmenn minkabúa skimaðir samkvæmt fyrirmælum sóttvarnalæknis.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur fyrirskipað hertar sóttvarnaraðgerðir á minkabúum, samkvæmt tillögu Matvælastofnunar. Markmið aðgerðanna er að verja minka fyrir smiti með kórónaveirunni sem veldur COVID-19. Í þeim felast m.a. hertar kröfur um persónulegar sóttvarnir starfsmanna, flutningur lifandi minka verður óheimill og ónauðsynlegar heimsóknir í minkahús bannaðar. Einnig verður sýningahald með minka bannað og því verða minkarnir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík ekki til sýnis á opnunartíma garðsins,“ segir í tilkynningunni.

Mikið hefur verið fjallað um kórónuveiru í mink síðustu vikurnar eftir að kórónuveira barst í minka og þaðan í mannfólk á miklum fjölda danskra minkabúa. Hefur þar verið ákveðið að lóga öllum minkum á öllum minkabúum landsins.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×