Kúamessa í stærsta fjósinu á Suðurlandi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 18. mars 2023 20:31 Sr. Óskar Hafsteinn, prestur í Hruna, sem verður með kúamessu sunnudagskvöldið 19. mars klukkan 20:00 í stærsta og glæsilegasta fjósi á Suðurlandi í Gunnbjarnarholti. Magnús Hlynur Hreiðarsson Heldur óvenjuleg messa verður haldin á morgun, en það er Kúamessa í stærsta fjósinu á Suðurlandi. Tveir kórar munu syngja í messunni. Presturinn hefur mestar áhyggjur af því að verða baulaður niður af kúnum
Hér erum við að tala um fjósið í Gunnbjarnarholti í Skeiða og Gnúpverjahreppi þar sem eru um 220 mjólkandi kýr. Séra Óskar Hafsteinn í Hrunaprestakalli, sem er í næstu sveit hefur boðað til Kúamessu í fjósinu sunnudagskvöldið 19. mars klukkan 20:00. „Kirkjan á náttúrulega bara að vera á meðal fólksins, þar sem fólkið er, þar er kirkjan og við búum hérna í öflugu landbúnaðarhéraði og ég er með feiknalega skemmtilegt samstarfsfólk í kringum mig, bæði öfluga kóra og organista og þau eru bara til í allt. Nú er það bara fjósið, sem er okkar vettvangur,“ segir sr. Óskar En kýr og guð, er eitthvað sameiginlegt þar? „Já, ég er búin að vera mér til skemmtunar að skoða svolítið kýr, naut og mjólk og fjós út frá biblíunni og þar kemur ýmislegt skemmtilegt í ljós. Og það má líka rifja það upp að nýja testamentið var upphaflega þýtt á íslensku í fjósi, nema hvað.“ Og Óskar bætir við. „Ég hugsa það að einhverjir ætli að koma í þessa messu til þess að freista þess að sjá baulað á prestinn og ég hugsa að þeim verði að ósk sinni.“ Sr. Óskar á alveg eins von á miklum bauli frá gripunum í fjósinu þegar hann byrjar að messa yfir dýrunum og mannfólkinu.Magnús Hlynur Hreiðarsson Tveir kórar munu syngja í messunni. “Í svona stórt hús þurfum við allavega tvo kóra. Ég hugsa að það verði á milli 40 og 60 söngvarar hérna á sunnudagskvöldið,” segir Óskar. En hvernig á svo fólk að vera klætt í kúamessunni? “Það er gott að vera í föðurlandinu og lopapeysunni, það er svolítið napurt, það er frost úti en við ætlum að syngja okkur til hita. Svo verður kaffi hérna og góð stemming.”
Hrunamannahreppur Skeiða- og Gnúpverjahreppur Þjóðkirkjan Landbúnaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Fleiri fréttir Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Sjá meira