Sjaldgæfur hvalreki í Eyjafirði vakti athygli Eiður Þór Árnason skrifar 8. apríl 2021 16:39 Ekki var annað að sjá en að norðsnjáldrinn væri í góðu líkamlegu ástandi. Mynd/Stefani Lohman Norðsnjáldri af ætt svínhvala fannst rekinn dauður í síðustu viku skammt sunnan við Grenivík í Eyjafirði. Dánarorsök er ókunn en hvalrekinn er sagður teljast til tíðinda þar sem aðeins er vitað um átta önnur tilvik hér við land frá því að skráningu hófst með skipulögðum hætti.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Náttúruminjasafni Íslands. Dýrið var 4,73 metrar að lengd, líklega fullorðinn tarfur en stærstir verða norðsnjáldrar 5−5,5 metrar og allt að 1,5 tonn. Kristinn Ásmundsson, bóndi á Höfða II, tilkynnti um hvalrekann eftir að hafa fundið hvalinn í svokallaðri Bót nærri bænum. Hvalshræið var urðað í fjöru þar sem það verður látið rotna. Beinagrindin verður hirt síðar og rannsökuð og einnig má nota hana í sýningahaldi, að sögn Hilmars J. Malmquist, forstöðumanns Náttúrminjasafnsins. Sverrir Daníel Halldórsson, sérfræðingur Hafrannsóknastofnunar, fór á vettvang hvalrekans ásamt Hlyni Péturssyni, útibússtjóra stofnunarinnar á Akureyri, þar sem þeir mældu hvalinn og tóku sýni til nánari rannsókna. Ekkert plast í maga hvalsins Fram kemur í tilkynningu að ekki væri annað að sjá en að norðsnjáldrinn (Mesoplodon bidens) væri í góðu líkamlegu ástandi. Engar fæðuleifar fundust í maga hans og ekkert plast heldur, sem að undanförnu hefur fundist í töluverðu magni í mögum annarra hvala af svínhvalaætt (Ziphidae). Hræið var að lokum urðað í fjöru.Mynd/Stefani Lohman Að sögn Náttúruminjasafnsins lifa norðsnjáldrar, líkt og aðrir tannhvalir, mest á bein- og brjóskfiskum og smokkfiski en almennt er lítið vitað um lífshætti dýranna. „Óvíst er um ævilengd norðsnjáldra, en miðað við aðra svínhvali geta þeir orðið 15−30 ára að jafnaði. Dýrin eru gráleit og dekkri á baki en kviði. Á baki eru oft rispur og rákir, líklega eftir slagsmál. Enda þótt norðsnjáldri tilheyri tannhvölum hefur hann aðeins eitt par af tönnum, líkt og latneska nafn hans gefur til kynna, bidens - tvær tennur. Tennurnar eru á miðjum neðri kjálka, en aðeins í karldýrum því kýrnar eru tannlausar.“ Að sögn Náttúruminjasafnsins finnast norðsnjáldrar í Norður-Atlantshafi, aðallega djúpt úti og meira í því austanverðu en vestan hafs. Norðsnjáldrar halda sig mest fjarri landi djúpt á hafi úti og eru auk þess mjög styggir. Ekki er vitað um stofnstærð tegundarinnar, hvorki hér á landi né hjá Alþjóðanáttúruverndarsambandinu (IUCN) eða Umhverfisstofnun Evrópusambandsins (EEA). Einungis er vitað um átta önnur tilvik hvalreka á ströndum Íslands frá því Hafrannsóknastofnun hóf skráningu hvalreka með skipulögðum hætti árið 1980. Fyrsti staðfesti fundurinn var árið 1992 við bæinn Ós í Breiðdal og síðasti árið 2018, þegar tarf rak á land í Höfðavík í Vestmannaeyjum.
Dýr Grýtubakkahreppur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Harvey Weinstein lagður inn á spítala Erlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Fleiri fréttir Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Sjá meira