Navalní fær stöðu hryðjuverkamanns Kjartan Kjartansson skrifar 11. október 2021 11:22 Veggmynd af Alexei Navalní í Genf í Sviss. Hann dúsir nú í rússnesku fangelsi og gæti vel ílengst þar verði stjórnvöldum í Kreml að vilja sínum. Vísir/EPA Fangelsismálayfirvöld í Rússlandi hafa nú skilgreint Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, sem öfga- og hryðjuverkamann. Dómstóll úrskurðaði samtök Navalní ólögleg öfgasamtök fyrr á þessu ári.
Navalní segist í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram hafa verið kallaður fyrir nefnd í fangelsinu þar sem hann er vistaður. Hún hafi síðan samhljóða samþykkt að gefa honum stöðu hryðjuverkamanns, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar. Rússnesk yfirvöld fangelsuðu Navalní fyrir að hafa brotið gegn skilorði fangelsisdóms sem hann hlaut vegna fjárglæpa. Mannréttindadómstóll Evrópu taldi þann dóm gerræðislegan. Skilorðið átti Navalní að hafa rofið með því að liggja í dái á sjúkrahúsi í Þýskalandi eftir að eitrað var fyrir honum með taugaeitri í Rússlandi í ágúst í fyrra. Navalní sakar rússnesk stjórnvöld um að hafa staðið að tilræðinu en því hafa þau neitað. Hlaut Navalní tveggja og hálfs árs fangelsisdóm en rússnesk stjórnvöld hafa undanfarið leitast við að tryggja að hann verði látinn dúsa enn lengur í steininum. Þau létu skilgreina samtök sem hann stofnaði sem öfgasamtök í sumar en þannig tókst þeim að koma í veg fyrir að bandamenn Navalní gætu boðið sig fram í þingkosningum í haust. Navalní er nú ákærður fyrir að stofna öfgasamtök sem hafi verið ætlað að koma óorði á Rússland, stefnu stjórnvalda, grafa undan stöðugleika og hvetja til mótmæla almennings. Markmið þeirra hafi verið ofbeldisfull valdataka. Sjóður Navalní gegn spillingu hefur í gegnum tíðina birt rannsóknir sem hafa varpað ljósi á spillingu Vladímírs Pútín forseta og bandamanna hans. Svæðisskrifstofur samtakanna víða um Rússland hafa svo hjálpað kjósendum að finna frambjóðendur í kosningum sem geta ógnað fulltrúum Sameinaðs Rússlands, flokks forsetans. Stjórnvöld í Kreml hafa gengið sérstaklega hart fram gegn stjórnarandstöðunni, andófsfólki og óháðum blaðamönnum á þessu ári. Fjöldi þeirra hefur verið fangelsaður og sætt húsleit. Þá hafa nokkrir sjálfstæðir fjölmiðlar verið lýstir útsendarar erlendra ríkja og sæta sérstöku eftirliti. Dmitrí Múratov, fyrrverandi ritstjóri dagblaðsins Novaya Gazeta, hlaut friðarverðlaun Nóbels í síðustu viku. Hann tileinkaði sex blaðamönnum sem unnu fyrir hann en voru myrtir verðlaunin. Sjálfur hefði hann veitt Navalní verðlaunin hefði hann eitthvað um það að segja.
Eitrað fyrir Alexei Navalní Rússland Tengdar fréttir Tileinkar friðarverðlaunin sex blaðamönnum hans sem voru myrtir Dmitry Muratov, blaðamaður og fyrrverandi ritstjóri rússneska miðilsins Novaya Gazeta tileinkaði friðarverðlaun Nóbels sem hann hlaut í morgun þeim sex blaðamönnum sem hafa verið myrtir á meðan þau störfuðu fyrir hann í Rússlandi. 8. október 2021 16:58 Navalní hvetur Rússa til að kjósa af kænsku Rússar ættu að kjósa af kænsku í þingkosningum sem fara fram í næsta mánuði til þess að losa tangarhald Sameinaðs Rússlands á rússneskum stjórnmálum. Þetta segir Alexei Navalní, einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar. 19. ágúst 2021 15:07 Frelsi talskonu Navalní skert í átján mánuði Rússneskur dómstóll dæmdi Kiru Jarmysh, talskonu Alexeis Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Rússlandi, til þess að sæta frelsisskerðingu í átján mánuði fyrir brot á sóttvarnareglum. 17. ágúst 2021 14:34 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Fleiri fréttir Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Sjá meira
Tileinkar friðarverðlaunin sex blaðamönnum hans sem voru myrtir Dmitry Muratov, blaðamaður og fyrrverandi ritstjóri rússneska miðilsins Novaya Gazeta tileinkaði friðarverðlaun Nóbels sem hann hlaut í morgun þeim sex blaðamönnum sem hafa verið myrtir á meðan þau störfuðu fyrir hann í Rússlandi. 8. október 2021 16:58
Navalní hvetur Rússa til að kjósa af kænsku Rússar ættu að kjósa af kænsku í þingkosningum sem fara fram í næsta mánuði til þess að losa tangarhald Sameinaðs Rússlands á rússneskum stjórnmálum. Þetta segir Alexei Navalní, einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar. 19. ágúst 2021 15:07
Frelsi talskonu Navalní skert í átján mánuði Rússneskur dómstóll dæmdi Kiru Jarmysh, talskonu Alexeis Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Rússlandi, til þess að sæta frelsisskerðingu í átján mánuði fyrir brot á sóttvarnareglum. 17. ágúst 2021 14:34