Vill heimila rafhlaupahjól á götum þar sem hámarkshraði er lágur Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 10. júlí 2020 20:00 Eyþór Máni Steinarsson er rekstrarstjóri Hopps. BALDUR HRAFNKELL
Bæta þarf löggjöf um rafhlaupahjól að mati rekstrarstjóra stærstu rafhlaupahjólaleigu landsins. Heimila ætti að nota fararskjótann á götum þar sem hámarkshraði er lágur og bæta þurfi vegakerfið með tilliti til hjólanna. Innflutningur á rafhlaupahjólum hefur stóraukist milli ára en fyrstu fimm mánuði ársins voru ríflega 4.500 slík hjól flutt inn til landsins. Framkvæmdastjóri Hopps, stærstu rafhlaupahjólaleigu landsins segir að gera þurfi úrbætur á vegakerfinu með tilliti til tækjanna. „Besta lausnin væri að byggja göngustíga sem eru sérstaklega ætlaðir fyrir þessi farartæki og þar koma engir bílar né gangandi nálægt en það er uppbygging sem mun taka nokkra tugi ára,“ sagði Eyþór Máni Steinarsson, rekstrarstjóri Hopps. Notendur Hopps eru orðnir 50 þúsund talsins. Þeir hafa hjólað um 400 þúsund kílómetra samtals en það samsvarar vegalengdinni héðan og til tunglsins. „Síðan væri markmiðið á þéttari svæðum að takmarka umferð bílanna og gefa þessum farartækjum meira rými á vegunum sem eru til staðar nú þegar. Þannig það er ráð að leggjast í smá framkvæmdir á sérstökum hjólastígum fyrir þessi tæki sem væru jafnvel upphitaðir og nothæfir alllan ársins hring,“ sagði Eyþór. Óheimilt er að nota farartækið á götum en Eyþór vill sjá breytingu þar á. „Ef þú mátt hjóla á götum þar sem hámarkshraði er 30 eða 50 kílómetrar á klukkustund þá ættiru að sjálsögðu, að minnsta kosti á götum með 30 kílómetra hámarkshraða á klukkustund, mega vera á þessum tækjum líka,“ sagði Eyþór. Stýrihópur á vegum skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar vinnur nú að nýrri hjólreiðaráætlun fyrir borgina. Hópurinn skilar áherslum í september og niðurstöðum í desember. Til skoðunar er hvort hækka eigi heildarfjármagn sem fer í uppbyggingu fyrir hjólandi vegfarendur. Vilji er fyrir því að forgangsraða hjólum ofar einkabílnum. Í kvöldfréttum í vikunni greindum við frá því að daglega leita einn til tveir á bráðamóttöku eftir slys á rafmagnshlaupahjóli. Þar af sumir með beinbrot eða höfuðáverka. Eyþór segir að koma megi í veg fyrir slys með því að bæta löggjöf í kringum tækin og hvetur hann fólk til að haga sér með ábyrgum hætti á hjólunum. Mér finnst áberandi að börn eru á þessum hjólum hjálmlaus, hvað finnst þér um það? „Það er að sjálfsögðu bannað og það er 16 ára hjálmskylda á Íslandi og allir sem eru undir 16 ára ættu að vera með hjálm sama hvort þeir eru á sínu eigin tæki eða leigutæki,“ sagði Eyþór.
Rafhlaupahjól Samgöngur Umferðaröryggi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Innlent Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Erlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Erlent Fannst hennar tími vera kominn Innlent Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Innlent Eitruð blanda þegar spilling og skipulagsmál fara saman Innlent Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Erlent Fleiri fréttir Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Katrín segir ríkari kröfu verða gerða til hennar um óhlutdrægni Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland? Þátttaka nemenda í „verkföllum“ skráð sem „óheimil fjarvist“ Eitruð blanda þegar spilling og skipulagsmál fara saman Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Fannst hennar tími vera kominn Sakar ríkisstjórnina um að ætla að afhenda fiskeldinu firðina til eilífðar Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur „Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Enn kröftugt gos úr einum gíg Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Velkomin í Verbúðina II Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Sjá meira