Fordæma ummæli Trumps um Harris Vésteinn Örn Pétursson skrifar 14. ágúst 2020 22:54 Kamala Harris er fædd í Bandaríkjunum og með bandarískan ríkisborgararétt. Drew Angerer/Getty
Framboðsteymi Joe Biden, forsetaframbjóðanda Demókrata, hefur fordæmt ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta þar sem hann ýjaði að því að Kamala Harris, sem nýlega var tilkynnt sem varaforsetaefni Biden í baráttunni um Hvíta húsið, væri ekki kjörgeng í embætti varaforseta. Trump sagði á blaðamannafundi í gær að hann „hefði heyrt“ að Kamala Harris, sem er bandarískur ríkisborgari og er fædd í Bandaríkjunum, uppfyllti ekki skilyrði til þess að sinna varaforsetaembætti Bandaríkjanna. Vísaði Trump til lagaskýringar Johns Eastman, íhaldsams lagaprófessors, sem telur að Harris geti ekki talist bandarískur ríkisborgari þar sem faðir hennar var frá Jamaíku og móðir hennar frá Indlandi. Harris er þó fædd í Kaliforníuríki og þar með ríkisborgari, en öll sem fæðast innan yfirráðasvæðis Bandaríkjanna teljast til ríkisborgara samkvæmt stjórnarskrá, en í 14. viðauka stjórnarskrár Bandaríkjanna segir: Allir þeir, sem fæddir eru í Bandaríkjunum eða öðlast hafa þegnréttindi þar, eru ríkisborgarar Bandaríkjanna og þess ríkis, þar sem þeir hafa heimilisfang sitt. Lagaskýring prófessorsins sem Trump vísar til snýr að því að Harris geti ekki talist ríkisborgari ef hvorugt foreldri hennar var með bandarískan ríkisborgararétt þegar hún fæddist. Sérfræðingar í bandarískum stjórnskipunarrétti hafa hins vegar hafnað þessari lagaskýringu. Árið 2010 sóttist Eastman eftir því að verða frambjóðandi Repúblikanaflokksins til embættis ríkissaksóknara Kaliforníu. Hann laut þó í lægra haldi fyrir Steve Cooley, sem tapaði síðan kosningunum fyrir engri annarri en Kamölu Harris, sem var frambjóðandi Demókrata til embættisins. Trump dró um árabil í efa að Barack Obama væri fæddur í Bandaríkjunum.KEVIN DIETSCH/EPA Segja ummælin ógeðfelld og aumkunarverð Í yfirlýsingu frá framboðsteymi Biden, sem var varaforseti Bandaríkjanna í forsetatíð Baracks Obama, segir að ummæli Trump, þar sem hann ýjar að því að Harris sé ekki ríkisborgari, séu „ógeðfelld“ og „aumkunarverð.“ Þá er vakin athygli á því að Trump fór fyrir herferð þar sem dregið var í efa að Obama hefði verið fæddur í Bandaríkjunum. „Donald Trump var á landsvísu leiðtogi hinnar skrípalegu fæðingarhyggju-hreyfingar (e. birtherism) gagnvart Obama forseta og hefur reynt að bera olíu á eld kynþáttahaturs og að rífa í sundur þjóð okkar á hverjum einasta degi sem hann hefur gegnt embætti forseta,“ segir í yfirlýsingu frá talsmanni framboðs Biden. Í yfirlýsingunni segir að það komi því lítið á óvart að Trump „geri sig að fífli með því að reyna að draga athygli almennings frá hræðilegum afleiðingum afleitra viðbragða hans við kórónuveirufaraldrinum.“
Forsetakosningar í Bandaríkjunum Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Blæs í glæður umdeildrar kenningar um kjörgengi Harris Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur nú blásið eldi í glæður afar umdeildrar kenningar sem gengur út á Kamala Harris, varaforsetaefni Joe Biden, sé ekki gjaldgeng í embættið. 14. ágúst 2020 06:48 Hver er þessi Kamala? Öldungadeildarþingmaðurinn Kamala Harris er varaforsetaefni Joe Biden, forsetaframbjóðanda demókrata, í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Valið á henni sem varaforsetaefni er sögulegt af ýmsum ástæðum. 12. ágúst 2020 11:30 Kamala Harris varaforsetaefni Biden Joe Biden, væntanlegur forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, hefur valið Kamala Harris sem varaforsetaefni sitt. 11. ágúst 2020 20:22 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Mikil tíðindi í glænýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sjá meira
Blæs í glæður umdeildrar kenningar um kjörgengi Harris Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur nú blásið eldi í glæður afar umdeildrar kenningar sem gengur út á Kamala Harris, varaforsetaefni Joe Biden, sé ekki gjaldgeng í embættið. 14. ágúst 2020 06:48
Hver er þessi Kamala? Öldungadeildarþingmaðurinn Kamala Harris er varaforsetaefni Joe Biden, forsetaframbjóðanda demókrata, í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Valið á henni sem varaforsetaefni er sögulegt af ýmsum ástæðum. 12. ágúst 2020 11:30
Kamala Harris varaforsetaefni Biden Joe Biden, væntanlegur forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, hefur valið Kamala Harris sem varaforsetaefni sitt. 11. ágúst 2020 20:22