Íbúar í Fellunum lögðu verktaka í tugmilljóna deilu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 19. október 2021 19:32 Loftmynd af Breiðholti. Vísir/Vilhelm Verktakafyrirtækið Múr- og málningarþjónustan Höfn ehf. hefur verið dæmt til að greiða húsfélaginu Torfufelli 23-35 í Breiðholti 34 milljónir króna í nærri áratuga langri deilu um framkvæmdir á fjölbýlishúsinu.
Málið má rekja til þess að árið 2009 var ákveðið að fá verkfræðistofu til að gera ástandsúttekt á húsinu og kostnaðaráætlun vegna viðhaldsframkvæmda. THG Arkitektar ehf. voru fengnir til verksins. Í skýrslu þeirra kom fram að húsið þarfnaðist töluverðra viðgerða. Samþykkti húsfélagið að leita tilboða í utanhúsviðgerðir á grundvelli ástandskýrslunnar, sem talið var nauðsynlegt að fara í. THG sá um að leita tilboða í verkið og fór svo að tilboði Múr- og málningarþjónustunnar Höfn upp á 95 milljónir var tekið. Næturlokun vantaði Framkvæmdirnar voru að einhverju leyti flóknar en í dómi héraðsdóms er það rakið að árið 2011 hafi húsfundur húsfélagsins rætt glugga á framhlið hússins, sem voru hluti af framkvæmdunum. Kom þar fram að næturlokun vantaði og það blési inn um gluggana. Á öðrum fundi sama ár kom fram að fjölmargar svalir þörfnuðust lagfæringa, þéttingar í gluggum væru ekki í lagi, leki væri víða á milli glugga og steons og rakamyndun undir sólbekk. Tekið var fram að athugasemdalistinn hafi ekki verið tæmandi. Árið 2013 leitaðu húsfélagið sér aðstoðar lögmanns til þess að krefjast úrbóta á framkvæmdunum en meðal annars var kvartað yfir því að næturlokanir hafi vantað á glugga, gluggarnir hafi auk þess lélegir og óþéttir og handföngin brotni af þeim við minnstu áreynslu. Fór það svo að lokum að málið fór fyrir dóm og stefndi húsfélagið verkatakfyrirtækinu sem og verkfræðistofunni. Verktakinn bæri ábyrgð á hafa selt glugga sem stæðust ekki kröfur Taldi húsfélagið að verktafyrirtækið bæri faglega ábyrgð vegna vanefnda á verksamningi aðila enda hafi þeim mátt vera ljóst, sem sérfræðingum á þessu sviði, að frágangur ísetning og þétting með nýjum gluggum væri andstæð ákvæðum í byggingarreglugerð og að vinnubrögð væru ófagleg. Þá hélt húsfélagið því fram að Múr- og málningarþjónustan Höfn ehf. bæri ábyrgð á því að hafa selt stefnendum glugga sem standist ekki áskildar og lögákveðnar kröfur byggingarreglugerðar hér á landi og séu í ósamræmi við ákvæði í verksamningi aðila. Taldi húsfélagið einnig að ráðgjöf og eftirlit verkfræðistofunnar hafi verið verulega ábótavant. Alls krafðist húsfélagið 34 milljóna króna í bætur frá verktakanum og átta milljóna króna frá verkfræðistofunni. Ekki í samræmi við kröfur Í dómi héraðsdóms, sem kveðinn var upp af dómara ásamt tveimur sérfróðum meðdómsmönnum, segir að húsfélagið hafi sýnt fram á að frágangur og ísetning, sem og þétting og næturlokanir í gluggum sem verktakafyrirtækið sá um hafi ekki verið í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til slíkrara framkvæmdar. Að auki féllst dómurinn á það að verkfræðistofan hefði ekki unnið í samræmi við samning sem gerður var við húsfélagið og ætti húsfélagið því rétt á afslætti vegna vinnu verkfræðistofunnar. Alls þarf verktakafyrirtækið að greiða húsfélaginu 34 milljónir en verkfræðistofan 3,2 milljónir vegna málsins.
Dómsmál Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira