Gísli og Viktor á meðal þeirra bestu

Viktor Gísli Hallgrímsson (nr. 16) og Gísli Þorgeir Kristjánsson (nr. …
Viktor Gísli Hallgrímsson (nr. 16) og Gísli Þorgeir Kristjánsson (nr. 10) eru tilnefndir í kjöri EHF. mbl.is/Óttar Geirsson

Gísli Þorgeir Kristjánsson og Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmenn í handknattleik, eru tilnefndir sem bestu leikmenn í sínum stöðum í Evrópumótum félagsliða á yfirstandandi tímabili.

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, stendur fyrir kjörinu sem tekur til leikmanna sem hafa leikið í Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildarinnar á tímabilinu.

Gísli Þorgeir er tilnefndur sem besti leikstjórnandi og Viktor Gísli sem besti markvörður.

Alls eru sjö leikmenn tilnefndir í hverri stöðu og er kosningin öllum opin en til þess að kjósa þarf að hlaða niður smáforritinu Home of Handball.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert