Torkennilegu hlutirnir reyndust meinlausir

Frá aðgerðum á vettvangi í dag.
Frá aðgerðum á vettvangi í dag. mbl.is/Jón H. Sigurmundsson

Torkennilegu hlutirnir sem fundust á nýja gámasvæðinu á Þorlákshöfn reyndust skaðlausir. Lögreglan á Suðurlandi var með mikinn viðbúnað á svæðinu í morgun, þar sem grunur var um að sprengja væri á svæðinu. 

Svo reyndist ekki og hafa viðbragðsaðilar verið kallaðir til baka og svæðið í kringum vettvanginn er ekki lengur girt af. 

Þetta segir Þorsteinn M. Kristinsson, varðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, við mbl.is. 

Í morgun voru bæði sprengjusveit Landhelgisgæslunnar og sérsveit ríkislögreglustjóra á vettvangi og tóku aðgerðir nokkrar klukkustundir. 

Starfsmaður fyrirtækis á gámasvæðinu hafði tilkynnt um torkennilegan mun á svæðinu og hófst rannsókn málsins þegar í stað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert