Vaktin: „Rússar mega ekki vinna þetta stríð“ Hólmfríður Gísladóttir og Samúel Karl Ólason skrifa 19. maí 2022 06:47 Ónýtur rússneskur bryndreki sem búið er að skrifa á „rússneskt herskip, farðu í rassgat“. Getty/Christopher Furlong Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur varað við því að fæðuskortur vegna átakanna í Úkraínu gæti varað í mörg ár og valdið hungursneyð víða um heim. Ráðamenn á Vesturlöndum ræða nú leiðir til að koma kornvöru frá Úkraínu, sem situr föst í vöruhúsum vegna átakanna og umsáturs Rússa við suðurströnd landsins. Fregnir herma að Rússar hafi gert skipulagðar árásir til að eyðileggja kornbirgðir en mörg lönd í Afríku og víðar eru afar háð kornútflutningi frá bæði Úkraínu og Rússlandi. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Helstu vendingar: Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, ávarpaði Bundestag, þýska þingið, í morgun og sagði þar að Rússland mætti ekki vinna stríðið í Úkraínu. Hann sagði stríðið vera stærstu krísu Evrópusambandsins hingað til og að einræðistilburðir Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, væri ógn gegn evrópskri samstöðu. Bandaríkjamenn segja Rússa enn hafa mikla yfirburði á vígvöllum Úkraínu og að þrátt fyrir mikið mannfall sé hernaðargeta þeirra mikil. Á blaðamannafundi Varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna í dag kom fram að stríðið gæti staðið yfir í langan tíma. Alþjóðabankinn hefur heitið því að leggja til 30 milljarða Bandaríkjadala til að freista þess að stemma stigu við fæðuskorti í heiminum. Fjármunirnir munu renna til nýrra verkefna og verkefna sem þegar eru í gangi. Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir meinta notkun Rússa á leiservopnum sé til marks um misheppnaða innrás þeirra og líkir fregnum af vopnunum við áróður nasista þegar þeir ræddu um „wunderwaffe“; nýtt undravopn. Selenskí hefur undirritað tilskipun til að framlengja yfirlýsingu um neyðarástand í landinu og herlög í 90 daga. Rússneskir embættismenn eru sagðir hafa áhyggjur af því að hersveitir Rússa í Maríupól hafi og séu að fara verulega illa með íbúa borgarinnar. Það muni gera Rússum erfiðara að kveða niður mótspyrnu í borginni og koma niður á áróðri þeirra um að Rússar hafi frelsað borgin. Bandaríkjamenn hafa opnað sendiráð sitt í Kænugarði á ný, eftir þriggja mánaða lokun. Fjármálaráðherrar G7 funda í dag til að ræða fjármál Úkraínu. Hér má finna vakt gærdagsins. Ef vaktin sést ekki hér að neðan, gæti þurft að endurhlaða síðuna.
Ráðamenn á Vesturlöndum ræða nú leiðir til að koma kornvöru frá Úkraínu, sem situr föst í vöruhúsum vegna átakanna og umsáturs Rússa við suðurströnd landsins. Fregnir herma að Rússar hafi gert skipulagðar árásir til að eyðileggja kornbirgðir en mörg lönd í Afríku og víðar eru afar háð kornútflutningi frá bæði Úkraínu og Rússlandi. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Helstu vendingar: Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, ávarpaði Bundestag, þýska þingið, í morgun og sagði þar að Rússland mætti ekki vinna stríðið í Úkraínu. Hann sagði stríðið vera stærstu krísu Evrópusambandsins hingað til og að einræðistilburðir Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, væri ógn gegn evrópskri samstöðu. Bandaríkjamenn segja Rússa enn hafa mikla yfirburði á vígvöllum Úkraínu og að þrátt fyrir mikið mannfall sé hernaðargeta þeirra mikil. Á blaðamannafundi Varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna í dag kom fram að stríðið gæti staðið yfir í langan tíma. Alþjóðabankinn hefur heitið því að leggja til 30 milljarða Bandaríkjadala til að freista þess að stemma stigu við fæðuskorti í heiminum. Fjármunirnir munu renna til nýrra verkefna og verkefna sem þegar eru í gangi. Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir meinta notkun Rússa á leiservopnum sé til marks um misheppnaða innrás þeirra og líkir fregnum af vopnunum við áróður nasista þegar þeir ræddu um „wunderwaffe“; nýtt undravopn. Selenskí hefur undirritað tilskipun til að framlengja yfirlýsingu um neyðarástand í landinu og herlög í 90 daga. Rússneskir embættismenn eru sagðir hafa áhyggjur af því að hersveitir Rússa í Maríupól hafi og séu að fara verulega illa með íbúa borgarinnar. Það muni gera Rússum erfiðara að kveða niður mótspyrnu í borginni og koma niður á áróðri þeirra um að Rússar hafi frelsað borgin. Bandaríkjamenn hafa opnað sendiráð sitt í Kænugarði á ný, eftir þriggja mánaða lokun. Fjármálaráðherrar G7 funda í dag til að ræða fjármál Úkraínu. Hér má finna vakt gærdagsins. Ef vaktin sést ekki hér að neðan, gæti þurft að endurhlaða síðuna.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Hernaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Fleiri fréttir Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Sjá meira