Ekki fleiri handtökur í tengslum við fótboltaleiki á Englandi í fjölda ára Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 21. janúar 2022 20:30 Lögregla og gæslufólk hefur oft þurft að grípa inn í á yfirstandandi tímabili. Charlotte Wilson/Offside/Offside via Getty Images Handtökur á fótboltaleikum í fimm efstu deildum Englands hafa ekki verið fleiri í fjölda ára og óspektir áhorfenda eru að versna samkvæmt lögreglu og gæslufólki í kringum fótboltaleiki.
Nýjustu tölur horfa á fyrri helming yfirstandandi tímabils og á fyrstu sex mánuðum tímabilsins hafa yfir 800 manns verið handteknir í tengslum við fótbolta leiki. Þá hafa einnig borist yfir 750 tilkynningar um óspektir. Yfirlögregluþjónninn Mark Roberts segeir að hegðun yngri stuðningsmanna sé sérstakt áhyggjuefni. Roberts hefur áður viðrað áhyggjur sínar af því að leyfa svokallað „Safe standing“ á leikjum þar sem engin sæti eru á ákveðnum svæðum. Þá hefur hann einnig velt fyrir sér afleiðingunum af því að leyfa stuðningsmönnum að neyta áfengis í kringum vellina. Arrests at football matches across the top five English leagues are at their highest levels in years, with fan disorder "getting worse", according to the UK's football policing lead.#bbcfootball— BBC Sport (@BBCSport) January 21, 2022 Nýjustu tölur taka fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2021 og þær eru svo bornar saman við sama tímabil árið 2019, rétt áður en áhorfendur voru bannaðir vegna kórónuveirufaraldursins. Á þeim tíma hefur lögreglan í Bretlandi handtekið 802 manns, en það er 47 prósent aukning frá 2019 þegar 547 manns voru handteknir. Aldrei hafa fleiri verið handteknir í tengslum við fótboltaleiki frá því að farið var að halda utan um þessa tölfræði tímabilið 2015-2016. Þá hafa borist tilkynningar um óspektir á tæplega helmingi allra leikja í efstu fimm deildum Englands, eða á 48 prósent leikja. Árið 2019 var tilkynnt um óspektir á 34 prósent leikja. Þá hafur atvikum þar sem að ungmenni eiga hlut að máli einnig fjölgað úr 154 árið 2019 upp í 210 á seinni hluta síðasta árs. Þessi fjölgun á sér stað þrátt fyrir að færri leikir hafi verið spilaðir á seinni hluta 2021 heldur en 2019. Árið 2019 voru leiknir 1.670 leikir á seinni hluta árs, en vegna frestanna hafa voru þeir 1.581 á sama tímabili í fyrra.
Enski boltinn Mest lesið „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn Stjarnan skellti tvisvar á Belichick: „Það er eins gott að þetta sé ekki grín“ Sport Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Enski boltinn „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Handbolti Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Körfubolti Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum Handbolti „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Handbolti Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Fleiri fréttir Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Sjá meira