Segir lækninn hafa neitað móður hans um meðferð Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 23. febrúar 2021 18:51 Áttræð móðir Sveinbjörns Guðmundssonar leitaði á stofnunina í kjölfar slyss í júní í fyrra. Vísir/Sigurjón Sonur aldraðrar konu sem þurfti að leita læknisaðstoðar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í kjölfar slyss segir að móður sinni hafi hreinlega verið neitað um meðferð af lækni hjá stofnuninni, en sá er grunaður um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum með þeim afleiðingum að minnsta kosti einn sjúklingur er látinn.
Líkt og fréttastofa greindi frá í gær er læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja grunaður um röð alvarlegra mistaka og vanrækslu í störfum sínum. Hann er meðal annars sakaður um að hafa sent fólk á lífslokameðferð án þess að þörf væri á því. Áttræð móðir Sveinbjörns Guðmundssonar leitaði á stofnunina í kjölfar slyss í júní í fyrra. „Henni var illa sinnt hvað varðar verkjastillingu. Hún var lengi sárþjáð og fékk panodíl og það hefur ekkert að segja þegar fólk er brotið og slitið og gigtveikt og verkjað.“ Hann segist ítrekað hafa óskað eftir betri meðferð - án árangurs. „Það voru þarna hjúkkur sem mér fannst vera á mínu bandi og sýndu mínu máli skilning en það virtust allir vera hræddir við þennan lækni, það þorði enginn að segja neitt. Það var hvíslað að manni ýmsu. Þetta situr enn þá í mér.“ Símtalið hvorugum til sóma Hann fékk svo símtal um að móðir hans yrði send heim, áður en hún náði bata. „Svo síðar um daginn þá hringir þessi læknir sem hafði með hana að gera og í raun og veru les mér pistilinn. Og klingdi svo út með því að segja að hún væri bara afskiptur einstæðingur. Þetta símtal, ég segi það alveg eins og er, það var hvorugum okkar til sóma og ég sá mér ekkert annað fært en að kveðja manninn og slíta samtalinu.“ Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur vísað máli læknisins til lögreglu.Vísir/Egill Konan er núna komin á hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ. „Þegar hún lagðist þar inn þá var það mikið hjartans mál hjá henni að þessi tiltekni læknir myndi aldrei koma að hennar málum og henni létti mikið þegar henni var sagt að Hrafnista væri með aðra lækna og kannski til að lýsa þessu þá var hún bara með yfirlýsingar um að ég myndi kýla hann kaldan ef hann kæmi. Henni var ekkert vel við þennan mann og ekki mér heldur. Og hann kemur vonandi aldrei nálægt því að lækna aftur fólk.“ Sveinbjörn leitaði til lögmanns en móðir hans var hrædd við viðbrögðin. „Ef stjórn sjúkrahússins hefur einhvern áhuga þá er þeim velkomið að tala við mig, það er kannski hægt að leysa þetta á kannski bara á einfaldan hátt með því að ræða málin og afsökunarbeiðni. Það er líka hægt að leysa þetta fyrir dómstólum.“ Kvaðst ekki hafa nægilega þekkingu á lífslokameðferðum Samkvæmt heimildum fréttastofu bar læknirinn því við að hafa ekki haft nægilega þekkingu á svokölluðum lífslokameðferðum sem hann hafði umsjón með hjá HSS. Maðurinn hafði starfað við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja frá árinu 2018, eða þar til hann lét sjálfur af störfum eftir að athugasemdir bárust um störf hans. Landlæknir rannsakaði málið og er álit embættisins eitt það umfangsmesta sem hefur verið gert og spannar hátt í fimmtíu blaðsíður. Niðurstöðurnar eru afdráttarlausar en þar segir að röð alvarlegra mistaka hafi verið gerð, en þau beinast meðal annars að því að læknirinn hafi sent fólk í líknandi meðferð án þess að þörf væri á því. Hann er ekki lengur með starfsleyfi og hefur ekki viljað tjá sig við fréttastofu vegna málsins. Mál hans er komið á borð lögreglu. Þá hefur heilbrigðisráðherra einnig verið upplýstur um mál læknisins.
Heilbrigðismál Reykjanesbær Lögreglumál Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Læknamistök á HSS Tengdar fréttir Læknir grunaður um röð alvarlegra mistaka Fyrrverandi læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sætir rannsókn vegna gruns um vanrækslu og röð alvarlegra mistaka sem leiddu til andláts að minnsta kosti eins sjúklings. Málið er á borði lögreglu. 22. febrúar 2021 18:31 Læknirinn nú við störf hjá Landspítala Fyrrverandi læknir sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er nú við störf á Landspítalanum. Hann er ekki með starfsleyfi sem læknir. Kæra hefur verið lögð fram á hendur lækninum og lögreglurannsókn er hafin. 24. febrúar 2021 18:37 Yfirlýsing frá fjölskyldunni: „Síðustu vikurnar voru móður okkar hreint kvalræði“ „Síðustu vikurnar voru móður okkar hreint kvalræði,“ segir í yfirlýsingu frá fjölskyldu konu sem lést í umsjá læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Læknirinn er grunaður um alvarleg mistök í starfi sem hafi leitt til andláts konunnar, líkt og fréttastofa hefur greint ítarlega frá. Fjölskyldan segir lækninn hafa sett móður þeirra á líknandi meðferð, án þess að forsendur væru fyrir því og án þess að upplýsa um meðferðina. Þau vilja að málið verði rannsakað sem manndráp. 24. febrúar 2021 19:28 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Hver er Kári Hansen? Innlent Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Erlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Aukin virkni í gosinu Innlent Umferðartafir vegna elds í tengivagni Innlent Fleiri fréttir Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Sjá meira
Læknir grunaður um röð alvarlegra mistaka Fyrrverandi læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sætir rannsókn vegna gruns um vanrækslu og röð alvarlegra mistaka sem leiddu til andláts að minnsta kosti eins sjúklings. Málið er á borði lögreglu. 22. febrúar 2021 18:31
Læknirinn nú við störf hjá Landspítala Fyrrverandi læknir sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er nú við störf á Landspítalanum. Hann er ekki með starfsleyfi sem læknir. Kæra hefur verið lögð fram á hendur lækninum og lögreglurannsókn er hafin. 24. febrúar 2021 18:37
Yfirlýsing frá fjölskyldunni: „Síðustu vikurnar voru móður okkar hreint kvalræði“ „Síðustu vikurnar voru móður okkar hreint kvalræði,“ segir í yfirlýsingu frá fjölskyldu konu sem lést í umsjá læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Læknirinn er grunaður um alvarleg mistök í starfi sem hafi leitt til andláts konunnar, líkt og fréttastofa hefur greint ítarlega frá. Fjölskyldan segir lækninn hafa sett móður þeirra á líknandi meðferð, án þess að forsendur væru fyrir því og án þess að upplýsa um meðferðina. Þau vilja að málið verði rannsakað sem manndráp. 24. febrúar 2021 19:28