Leifar fellibylsins Epsilon nálgast landið Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 26. október 2020 06:45 Vindaspá Veðurstofunnar klukkan níu í fyrramálið sýnir að ansi hvasst verður sunnan- og suðaustantil. Veðurstofa Íslands
Það verður fremur hæg austlæg eða norðaustlæg átt í dag, þó allt að tíu metrar á sekúndu norðvestantil. Þá verður skýjað með köflum og þurrt að kalla en lítils háttar él eða slydduél á Norðausturlandi að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í kvöld munu svo leifar fellibylsins Epsilon nálgast landið suður úr höfum og á þá að hvessa úr austri syðst á landinu. Þessi fyrrverandi fellibylur hefur sameinast annarri lægð sem nú eru af svipuðum styrk og vetrarlægð á norðanverðu Atlantshafi. „Nýja lægðin staldrar dálítið við, eitthvað út vikuna. Má búast við að hvasst verði með suðurströndinni, allt að 18-23 m/s undir Eyjafjöllum og austur í Öræfum, frá og með í nótt og jafnvel fram á föstudag. Ferðalangar á þessum svæðum ættu að fylgjast með veðurspám og viðvörunum. Við sleppum við mest alla úrkomuna úr lægðinni sem er talsverð á djúpunum suður og suðvestur af landinu. Annars austlæg átt 8-15 m/s á morgun, hvassast norðvestantil. Lítlsháttar él um norðaustanvert landið, en bjart veður vestantil,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu: Austan 3-10, hvassast vestanlands, en 10-15 við suðurströndina og á Vestfjörðum seinni partinn. Skýjað með köflum og þurrt að kalla, en lítilsháttar él eða slydduél norðaustantil. Austlæg átt á morgun, víða 8-15 m/s, en 15-20 syðst. Bjart með köflum, en lítilsháttar rigning eða slydda á austanverðu landinu. Hiti 0 til 6 stig, en frost í innsveitum á Norður- og Austurlandi í kvöld og á morgun. Á þriðjudag: Austlæg átt, víða 8-15 m/s, en 15-20 syðst. Bjart með köflum, en lítilsháttar rigning eða slydda á austanverðu landinu. Hiti 1 til 7 stig. Á miðvikudag: Norðaustlæg átt, 10-18 m/s. Skýjað og lítilsháttar væta norðan- og austanlands, en bjart yfir Vesturlandi. Hiti 0 til 6 stig. Á fimmtudag: Stíf austanátt með rigningu um mest allt land, talsverð suðaustan- og austantil. Hiti breytist lítið. Á föstudag: Suðaustan kaldi og rigning um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt að mestu og bjartara veður norðaustantil. Áfram svipaður hiti.
Veður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Innlent Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Innlent Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Erlent Fleiri fréttir Víða rigning og slydda en ljúfasta veður í næstu viku Glæsilegur þokubogi í Gunnarsholti Enn verður kalt í dag Hlýnar um helgina Fer að snjóa sunnan- og vestantil Hríðarveður og erfitt yfirferðar á Norðurlandi í dag Norðanátt og víða él á landinu Víða dálítil snjókoma eða él Hvöss austanátt syðst á landinu Bætir í vind og úrkomu í nótt Skýjað að mestu en úrkoma eða rigning sunnantil Aflétta rýmingu í Neskaupstað en ekki Seyðisfirði Allhvöss norðaustanátt og snjór norðan- og austantil Vonskuveður um allt land og vegir víða ófærir Áfram bálhvasst víða en dregur úr í kvöld Fjórði sólríkasti vetur í Reykjavík frá upphafi mælinga Djúp lægð nálgast og viðvörun gefin út Gular viðvaranir um allt austanvert landið Gul viðvörun á suðausturlandi um helgina Kólnar aftur í kvöld og spáð stormi um helgina Líkur á erfiðum akstursskilyrðum Þokkalega bjart veður víðast hvar Él norðantil en bjartviðri suðvestanlands Vegir lokaðir víða um landið Víða kalt í dag Gular viðvaranir og versnandi akstursskilyrði Bætir í ofankomu og viðbúið að færð versni Hvessir víðast hvar síðdegis Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Kalt og bjart í dag en dálítill kaldi Sjá meira