Körfubolti

Giannis með þrennu í stórsigri á Golden State

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Giannis Antetokounmpo var frábær í stórsigri Milwaukee Bucks á Golden State Warriors í nótt.
Giannis Antetokounmpo var frábær í stórsigri Milwaukee Bucks á Golden State Warriors í nótt. AP/Morry Gash

Giannis Antetokounmpo var frábær í NBA-deildinni í nótt þegar meistarar Milwaukee Bucks léku sér að Golden State Warriors.

Giannis var með þrennu á undir þrjátíu mínútum í leiknum en hann skoraði 30 stig, tók 12 fráköst og gaf 11 stoðsendingar í 118-99 sigri Bucks á Warriors. Þetta var þriðja þrenna hans á leiktíðinni.

Þetta var fyrsti leikur Bucks eftir að þjálfarinn Mike Budenholzer kom til baka eftir kórónuveirusmit. Budenholzer missti af fjórum leikjum og Bucks vann aðeins einn þeirra.

Leikmenn hans ætluðu greinilega að sjá til þess að þetta væri þægilegt kvöld fyrir hann því Milwaukee Bucks vann fyrsta leikhlutann 37-21 og var komið 39 stigum yfir í hálfleik, 77-38.

„Liðið var mjög einbeitt í kvöld. Þetta byrjar allt í varnarleiknum og þegar við erum góðir þar þá náum við oftast að spila okkar besta leik. Lið eins og Warriors með leikmenn eins og (Stephen) Curry og (Klay) Thompson kallar fram það besta í þér. Menn mæta vel einbeittir til leiks á móti þeim,“ sagði Mike Budenholzer.

Khris Middleton skoraði 23 stig fyrir Milwaukee og Bobby Portis var með 20 stig. Giannis kominn með 23 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar í fyrri hálfleiknum.

Þetta var þriðji leikur Klay Thompson eftir endurkomuna. Liðið vann fyrsta leikinn en hefur nú tapað tveimur leikjum í röð en þeir steinlágu líka á móti Memphis Grizzlies.

Andrew Wiggins var stigahæstur hjá Golden State með sextán stig og Jonathan Kuminga skoraði fimmtán stig. Skvettubræðurnir voru hins vegar aðeins með 23 stig samanlagt, Curry skoraði 12 stig en Klay 11 stig.

„Við byrjuðum leikinn skelfilega og það klikkaði allt sem klikkað gat á báðum endum vallarins,“ sagði Stephen Curry eftir leikinn.

Brooklyn Nets var aftur komið á heimavöll en það þýddi líka að liðið var án Kyrie Irving. Nets tapaði stórt á móti Oklahoma City Thunder 130-108 en Kevin Durant var fjarri góðu gamni í leiknum. Shai Gilgeous-Alexander átti þrumuleik en hann skoraði 33 stig, tók 10 fráköst og gaf 9 stoðsendingar.

James Harden var með 26 stig og 9 stoðsendingar fyrir Brooklyn en hinir fjórir byrjunarliðsmennirnir voru bara samanlagt með 27 stig og 3 stoðsendingar í öllum leiknum.

Desmond Bane skoraði 21 stig og Jaren Jackson Jr. var með 20 stig þegar Memphis Grizzlies vann sinn ellefta leik í röð nú 116-108 sigur á Minnesota Timberwolves. Stórstjarnan Ja Morant bætti við 16 stigum, 9 stoðsendingum og 8 fráköstum en Anthony Edwards var stighæstur hjá Úlfunum með 30 stig.

  • Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:
  • Milwaukee Bucks - Golden State Warriors 118-99
  • Memphis Grizzlies - Minnesota Timberwolves 116-108
  • New Orleans Pelicans - LA Clippers 113-89
  • Brooklyn Nets - Oklahoma City Thunder 109-130
  • Denver Nuggets - Portland Trail Blazers 140-108

Lögmál leiksins er vikulegur þáttur um NBA-deildinni sem er sýndur á mánudögum á Stöð 2 Sport 2. NBA-deildin er hluti af Sport Erlent sem kostar kr. 3.990 á mánuði. Smelltu hér til að kaupa áskrift.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×