Stirður eftir alla löngu boltana hjá nýja þjálfaranum Valur Páll Eiríksson skrifar 21. mars 2023 09:01 Rúnar Alex Rúnarsson hefur þurft að aðlaga leik sinn undir stjórn nýs þjálfara. Hann kveðst hins vegar spenntur fyrir komandi landsliðsverkefni. Getty/Robbie Jay Barratt Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður Íslands, tók ekki þátt á æfingu liðsins í München í Þýskalandi í gær þar sem hann var nýlentur eftir leik liðs hans Alanyaspor kvöldið áður. Þar hefur hann þurft að aðlagast leikstíl nýs þjálfara.
Aðspurður um gengið í Tyrklandi undanfarnar vikur segir Rúnar Alex: „Upp og ofan. Þjálfarinn hætti mjög óvænt og það var mikil eftirsjá af honum. Við byrjuðum mjög vel með nýja þjálfaranum þar sem við vinnum 1-0 mjög góðan sigur og svo höfum við tapað síðustu tveimur og erum komnir í smá baráttu núna. Sem er ekkert dramatískt þannig en það hefði mátt ganga betur,“ segir Rúnar Alex sem segir ákveðnar áherslubreytingar hafa orðið eftir þjálfaraskiptin. „Við vorum með mjög nútímalegan þjálfara sem spilaði úr öllu og notaði mína styrkleika mjög mikið. Það hentaði mér mjög vel og var í raun langstærsta ástæðan fyrir því að ég fór út til Tyrklands til að byrja með,“ „Svo kemur nýr þjálfari sem er bara gamli skólinn. Við erum að verjast töluvert meira núna og spila löngum boltum. Það er allt í lagi, maður lærir bara að spila öðruvísi og glíma við það. Ég reyni þá að bæta mig á öðrum sviðum undir nýjum þjálfara,“ segir Rúnar Alex. Aðspurður um hvort mörg löng spörk sitji í honum eftir leikinn í fyrrakvöld segir hann: „Já, maður var að spila í gærkvöldi og lenti stuttu fyrir æfingu svo það er bara skynsamlegast. En vissulega voru þónokkuð mörg útspörk í gær sem sitja svolítið í mér.“ Klippa: Rúnar Alex Spenntur að byrja á erfiðum leik Ísland hefur leik í undankeppni EM 2024 í Þýskalandi á fimmtudaginn kemur er liðið mætir Bosníu í bænum Senica. Leiðin liggur eftir það til Liechtenstein á sunnudag. Rúnar kveðst spenntur fyrir nýtti undankeppni. „Ég er mjög spenntur að byrja á erfiðum leik. Ég held að það verði gott fyrir okkur og við höfum alltaf verið góðir gegn góðum þjóðum. Ég held það geti verið mjög gott fyrir okkur að byrja á vonandi góðum úrslitum og taka það með okkur inn í þessa undankeppni,“ „Við viljum fara á EM og þá verðum við að fá stig úr sem flestum leikjum. Þá er gott að byrja á því að fá úrslit í Bosníu og byggja ofan á það,“ segir Rúnar Alex. Fleira kemur fram í viðtalinu við Rúnar Alex sem má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan. Ísland mætir Bosníu á fimmtudag og Liectenstein á sunnudag. Vísir mun fylgja liðinu vel eftir í kringum leikina tvo.
Landslið karla í fótbolta EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Andri og Eiður mættir til Belgíu að semja Fótbolti Líf Chaz á Íslandi gæti endað á Netflix Körfubolti Léku með eftirnöfn mæðra sinna á treyjunum Fótbolti Fékk flösku í hausinn í gær og mætti með hjálm í dag Sport Trúir að Burnley snúi aftur upp: „Er ekki að væla og vorkenna okkur“ Fótbolti Dagskráin í dag: Stútfullur sófasunnudagur Sport Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Íslenski boltinn Leiðin að lengsta skíðastökki allra tíma Sport Hálf áttræður Warnock gæti snúið aftur tveimur mánuðum eftir að hann hætti Fótbolti „Núna skora ég á Njarðvíkinga að jafna baráttuna í stúkunni“ Körfubolti Fleiri fréttir Arteta hælir Ten Hag og vonast til að hann haldi áfram Andri og Eiður mættir til Belgíu að semja Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Trúir að Burnley snúi aftur upp: „Er ekki að væla og vorkenna okkur“ Léku með eftirnöfn mæðra sinna á treyjunum Hálf áttræður Warnock gæti snúið aftur tveimur mánuðum eftir að hann hætti AC Milan kom sér aftur á sigurbraut með stórsigri Hólmbert upp í efstu deild en Ísak gæti enn farið beint upp „Gæti orðið spennandi verkefni að vera í botnbaráttu“ „Mikilvægt að ná upp stöðugleika“ Bjarni Mark: Sendi hjarta til baka, enda elska ég þá alla Meistarar Madrid halda áfram að vinna Lærisveinar Freys á leið í umspil þökk sé sigri annars Íslendingaliðs Bologna nálgast Meistaradeildina í fyrsta sinn í sextíu ár Davíð Smári: Við erum búnir að æfa þessa íþrótt síðan við fæddumst Þrjú íslensk mörk í risasigri Fortuna Sittard Örlög Luton ráðin og allir nýliðarnir falla Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Þriðji sigurinn í röð og daumurinn um Evrópusæti lifir Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Jóhann fékk ekki að spila þegar Burnley féll Karólína með stjörnum á toppi listans Kristall hetjan en fagnaði ósæmilega og fékk rautt Algjör martröð eins manns þegar Celtic vann erkióvininn Titillinn hrifsaður úr greipum Diljár og fall blasir við Sveini Gvardiol skaut City á toppinn Stuðningsmenn stöðvuðu liðsrútuna og leik Standard frestað Andri Lucas fékk kanilstykki í verðlaun Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Sjá meira