Tveir markverðir með veiruna

Illan Meslier er með kórónuveiruna.
Illan Meslier er með kórónuveiruna. AFP

Illan Meslier markvörður Leeds og Sam Johnstone markvörður West Brom verða frá keppni næstu daga þar sem þeir hafa verið greindir með kórónuveiruna. 

Johnstone lék ekki með West Brom í 3:2-sigrinum á Wolves í dag og Meslier er ekki með Leeds gegn Brighton. 

Meslier verður væntanlega ekki með Leeds gegn Newcastle í næsta leik en gæti snúið aftur gegn Leicester í lok janúar. 

Johnstone missir væntanlega af leikjum West Brom gegn West Ham og Manchester City. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert