Hjálmar sækist einnig eftir þriðja sæti

Hjálmar Sveinsson.
Hjálmar Sveinsson. Ljósmynd/Aðsend

Hjálmar Sveinsson, formaður menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar, gefur kost á sér á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor, og óskar eftir stuðningi í þriðja sæti í forvali flokksins 12.‒13. febrúar.

Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs borgarinnar, hefur einnig óskað eftir stuðningi í þriðja sætið í forvalinu.

Fram kemur í tilkynningu að Hjálmar hafi starfað þrjú kjörtímabil í borgarpólitíkinni, aflað sér mikillar reynslu og náð verulegum árangri. Hann er einnig stjórnarformaður Strætó, en var á síðasta kjörtímabili formaður umhverfis- og skipulagsráðs, og þar áður í skipulagsráði og stjórnarformaður Faxaflóahafna.

„Mitt erindi í borgarpólitíkinni hefur alltaf verið skýrt,“ segir hann í orðsendingu til Samfylkingarfólks í gær, og rekur þar framfarir á þessum sviðum undanfarin ár í borginni og á höfuðborgarsvæðinu.

Hann segir brýn verkefni framundan, þar á meðal Borgarlínuna og grundvallarumbætur í samgöngumálum, viðnám við loftslagsbreytingum og ný íbúðarhverfi á illa nýttum svæðum í borgarlandinu. „Auðvitað þurfum við að tryggja að nýja Reykjavík sé skemmtileg og falleg borg, þar sem lögð er áhersla á velferð, á jöfnuð og á góða þjónustu við alla borgarbúa, frá bernsku til efri ára.“

Hjálmar (f. 1958) er menntaður í heimspeki og bókmenntum í Reykjavík og Berlín og starfaði lengi við þáttagerð á RÚV. Árið 2017 kom út eftir hann og Hrund Skarphéðinsdóttur bókin Borgin ‒ heimkynni okkar um borgir, stefnur, skipulag, sögu og mannlíf

Hjálmar er kvæntur Ósk Vilhjálmsdóttur myndlistarmanni og eiga þau þrjú börn. Hann er útivistar- og hjólreiðamaður og býr á Baldursgötunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert