„Ég myndi sjálf berja þann sem legði hendur á mín hross“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 22. nóvember 2021 20:00 „Ég er mjög ósátt við þetta myndband. Þarna birtast myndir heiman frá mér, og ekkert af minni starfsemi tengist því sem kemur fram í myndbandinu,“ segir Sæunn Þórarinsdóttir, hrossabóndi um myndband sem birt var í morgun af slæmri meðferð mera við blóðtöku.
Á myndbandinu sést hundur Sæunnar glefsa í hross og í bakgrunni sést maður slá til hrossa með priki. Sæunn segir að þarna hafi verið um að ræða óstabíla hryssu, sem hafi ráðist á bæði menn og önnur dýr, og að hundurinn hafi glefsað í hana eftir að hún sparkaði í hann. Fella hafi þurft hryssunnar vegna hegðunar hennar. „Þessi hundur var að verja sig og hryssan var ekki „hundelt“ eins og segir í þessu myndbandi. Þetta var tekið árið 2019 ogvið enduðum á að þurfa að fella hana því hún var orðin hættuleg.“ Sæunn segir það ósanngjarnt að blanda sinni starfsemi inn í þetta myndband, enda fylgi hún öllum lögum og reglum. „Mér finnst þetta bara ömurlegt og er ekki lýsandi dæmi fyrir það sem gengur á hjá okur. Hér er blátt bann við öllum barsmíðum. Ég myndi sjálf berja þann sem legði hendur á mín hross. Það er bara svoleiðis,“ segir Sæunn. Þá segir hún að kvikmyndafólk hafi tekið allt úr samhengi. Fullyrðingar þeirra um að Sæunn hafi hætt blóðtökunni þegar fólkið kom á staðinn eigi ekki við nein rök að styðjast, þarna hafi blóðtökunni einfaldlega verið lokið. Þá séu fullyrðingar þeirra um að dýralæknir sem framkvæmdi blóðtökuna hafi elt þau á bíl sínum séu líka fráleitar; dýralæknirinn hafi sjálfur verið á heimleið eftir að hafa lokið verki sínu á bænum. „Við gerum alltaf vel við hrossin okkar og Ísteka stendur sig vel í að halda utan um þetta starf. Ég er bara verulega ósátt við þetta – það geta allir búið til myndbönd um hvað sem er og gert hana ljóta. Þetta er einungis gert í gróðastarfsemi,“ segir Sæunn, en Ísteka ber ábyrgð á blóðtökum mera á Íslandi. „Ef myndin hefur áhrif á innkomu okkar þá enda hrossin í sláturhúsi,“ segir Sæunn. Hún hyggst leita réttar síns hjá Persónuvernd vegna málsins. Myndina má sjá hérna fyrir neðan, en hún er 20 mínútna löng og var um eitt og hálft ár í vinnslu. Hund Sæunnar má sjá á mínútu 4:08.
Dýraheilbrigði Hestar Dýr Blóðmerahald Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Sjá meira