Múlanum ætlað að fjölga Norðfirðingum Kristján Már Unnarsson skrifar 8. apríl 2021 09:31 Guðmundur R. Gíslason, framkvæmdastjóri SÚN, Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað. Einar Árnason Norðfirðingar vonast til að heimta aftur brottflutta íbúa til baka og fá fjölda nýrra starfa með skrifstofuklasa og nýsköpunarmiðstöð sem búið er að opna í Neskaupstað.
Í fréttum Stöðvar 2 var greint frá nýju hlutverki húss sem áður var hverfisverslun í austasta hluta Neskaupstaðar. Þann 1. febrúar síðastliðinn, eftir stækkun og endurbætur, var það opnað sem skrifstofuklasi og kallað Múlinn, eftir Hellisfjarðarmúla, sem blasir við bæjarbúum handan Norðfjarðar. Múlinn er í austasta hluta Neskaupstaðar.Einar Árnason Þegar starfa milli tuttugu og þrjátíu manns í húsinu frá tíu ólíkum fyrirtækjum og stofnunum. Þar eru til dæmis Deloitte endurskoðendur, Stapi lífeyrissjóður, Náttúrustofa Austurlands, Austurbrú og rannsóknarstofur Matís en eigandi hússins er Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað. „Við búumst við að þetta verði svona suðupottur. Nú þegar hafa bæst við þrjú ný störf í bæinn út af þessari byggingu okkar,“ segir Guðmundur R. Gíslason, framkvæmdastjóri SÚN. Sameiginleg kaffistofa Múlans.Einar Árnason Í húsinu gildir sú regla að bannað er að hafa kaffikönnu inni í eigin rými. Allir verða að hittast á kaffistofunni. „Það verður til þess að fólk úr mismunandi greinum fer að tala saman. Hugsanlega verður þá til verkefni úr því og þá nýsköpun og þróun,“ segir Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar.Einar Árnason Enn eru lausar skrifstofur og hægt er að leigja sér stakt borð. Þeir Guðmundur og Jón Björn lýsa því hvernig Múlinn skapar tækifæri fyrir þá sem vilja flytja út á land, ekki síst brottflutta Norðfirðinga, til að flytja störf án staðsetningar með sér. Athygli vekur að það er einn stærsti eigandi Síldarvinnslunnar stendur að þessu. „Það er oft talað um það á hátíðarstundum að arðurinn af auðlindinni eigi að renna til þjóðarinnar. Það er það sem við erum að gera hjá SÚN. Við erum að nýta arðinn af hlutabréfunum í Síldarvinnslunni til uppbyggingarverkefna í Neskaupstað,“ segir Guðmundur. Frá Neskaupstað.Einar Árnason „Það er ekki hlaupið að því að reisa svona hús. Við erum heppin að Samvinnufélagið hér er með það að markmiði að styrkja samfélagið,“ segir bæjarstjórinn. „Svo getum við líka byggt við. Og við höfum fullan hug á því. Ég hef alltaf sagt að þetta er bara fyrsti áfangi,“ segir framkvæmdastjóri SÚN. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Fjarðabyggð Nýsköpun Byggðamál Tengdar fréttir Ævintýraleg öflun verðmæta á skömmum tíma á loðnuvertíð Það er óhætt að tala um loðnuævintýri miðað við útflutningsverðmæti síðasta loðnufarms fiskiskipsins Beitis, sem reyndist 650 milljónir króna. Það tók áhöfn skipsins aðeins átta klukkustundir að ná aflanum um borð. 29. mars 2021 23:34 Nýstárlegri starfsemi í gömlu húsi ætlað að koma Norðfirði á kortið Fyrsta alþjóðalega gestavinnustofan hérlendis fyrir hinsegin listamenn verður opnuð í Neskaupstað um páskana í næstelsta húsi bæjarins. Stofnendur vonast til að verkefnið komi Norðfirði á kortið fyrir menningarlega sérstöðu. 27. mars 2021 21:45 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Fleiri fréttir Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Sjá meira
Ævintýraleg öflun verðmæta á skömmum tíma á loðnuvertíð Það er óhætt að tala um loðnuævintýri miðað við útflutningsverðmæti síðasta loðnufarms fiskiskipsins Beitis, sem reyndist 650 milljónir króna. Það tók áhöfn skipsins aðeins átta klukkustundir að ná aflanum um borð. 29. mars 2021 23:34
Nýstárlegri starfsemi í gömlu húsi ætlað að koma Norðfirði á kortið Fyrsta alþjóðalega gestavinnustofan hérlendis fyrir hinsegin listamenn verður opnuð í Neskaupstað um páskana í næstelsta húsi bæjarins. Stofnendur vonast til að verkefnið komi Norðfirði á kortið fyrir menningarlega sérstöðu. 27. mars 2021 21:45