Doucoure hélt Everton uppi | Leeds og Leicester féllu Aron Guðmundsson og Hjörtur Leó Guðjónsson skrifa 28. maí 2023 17:31 Abdoulaye Doucoure reyndist hetja Everton í dag. Will Palmer/Sportsphoto/Allstar Via Getty Images Vísir var með beina textalýsingu frá gangi mála í lokaumferðinni í ensku úrvalsdeildinni. Mesta spennan var í botnbaráttunni þar sem Everton, Leicester City og Leeds United kepptust um að forðast fallið. Abdoulaye Doucoure reyndist hetja Everton er hann skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri gegn Bournemouth í dag. Af þeim þremur liðum sem kepptust um að halda sæti sínu í deildinni stóð Everton best að vígi og ljóst að sigur myndi alltaf halda liðinu uppi. Everton vann því 1-0 sigur gegn Bournemouth og sæti liðsins í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili því tryggt. Leicester gerði hvað það gat til að halda sæti sínu í deildinni og liðið vann 2-1 sigur gegn West Ham þar sem Harvey Barnes og Wout Faes sáu um markaskorun liðsins. Sigurinn dugði þó skammt og Englandsmeistararnir árið 2016 eru fallnir í B-deildina. Leeds, þriðja og seinasta fallbaráttuliðið, mátti hins vegar þola 4-1 tap gegn Tottenham og ljóst að þau úrslit gerðu ekkert nema fella liðið niður um deild. Að lokum var einnig enn barátta um sæti í Sambandsdeild Evrópu þar sem Tottenham og Brentford gátu stolið sætinu af Aston Villa. Tottenham vann sem áður segir 4-1 sigur gegn Leeds og Brentford vann 1-0 sigur gegn Manchester City, en þar sem Aston Villa vann 2-1 sigur gegn Brighton eru Villa-menn á leið í Evrópukeppni á næsta tímabili. Allt það helsta sem gerðist í leikjum dagsins má lesa í vaktinni hér fyrir neðan.
Abdoulaye Doucoure reyndist hetja Everton er hann skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri gegn Bournemouth í dag. Af þeim þremur liðum sem kepptust um að halda sæti sínu í deildinni stóð Everton best að vígi og ljóst að sigur myndi alltaf halda liðinu uppi. Everton vann því 1-0 sigur gegn Bournemouth og sæti liðsins í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili því tryggt. Leicester gerði hvað það gat til að halda sæti sínu í deildinni og liðið vann 2-1 sigur gegn West Ham þar sem Harvey Barnes og Wout Faes sáu um markaskorun liðsins. Sigurinn dugði þó skammt og Englandsmeistararnir árið 2016 eru fallnir í B-deildina. Leeds, þriðja og seinasta fallbaráttuliðið, mátti hins vegar þola 4-1 tap gegn Tottenham og ljóst að þau úrslit gerðu ekkert nema fella liðið niður um deild. Að lokum var einnig enn barátta um sæti í Sambandsdeild Evrópu þar sem Tottenham og Brentford gátu stolið sætinu af Aston Villa. Tottenham vann sem áður segir 4-1 sigur gegn Leeds og Brentford vann 1-0 sigur gegn Manchester City, en þar sem Aston Villa vann 2-1 sigur gegn Brighton eru Villa-menn á leið í Evrópukeppni á næsta tímabili. Allt það helsta sem gerðist í leikjum dagsins má lesa í vaktinni hér fyrir neðan.
Enski boltinn Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Fleiri fréttir Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Sjá meira