Hlaut lífstíðardóm fyrir að nota eiturslöngur til að myrða eiginkonu sína Þorgils Jónsson skrifar 14. október 2021 17:21 Maðurinn sem um ræðir sigaði tveimur eiturslöngum á konu sina, þar á meðal kóbraslöngu eins og sést hér á myndinni. Maður frá Keralaríki í suðurhluta Indlands var fyrr í vikunni dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína á síðasta ári með því að siga á hana eiturslöngum.
Í frétt á vef Al Jazeera segir að umræddur maður, sem heitir Sooraj Kumar og er 28 ára gamall, hafi fyrst sigað höggormi á konu sína, Uthra, og var hún í tvo mánuði á sjúkrahúsi að jafna sig eftir eiturbitið. Hún dvaldi svo á heimili foreldra sinna þar sem hún safnaði kröftum, en Kumar kastaði á hana kóbraslöngu þar sem hún svaf og lést hún af völdum bitsins í maí á síðasta ári. Kumar var handtekinn á heimili sínu eftir ábendingar frá foreldrum hinnar látnu. Hann neitaði sök, en símagögn leiddu í ljós að hann hafði verið í sambandi við slönguhöndlara og hafði einnig horft á myndbönd um slöngur áður en Uthra var myrt. Sýnt þótti að Kumar staldraði við í herbergi konunnar eftir kóbraslöngubitið og kippti sér ekkert upp við það þegar tengdamóðir hans kallaði á hjálp. Að sögn slönguhöndlara var mögulegt að Kumar hafi meitt slönguna til þess að fá hana til að bíta konu hans þar sem hún svaf. Uthra var komin af efnafólki en eiginmaður hennar var í fjárkröggum. Hann hafði að sögn verið að þrýsta á um að hún kæmi með meiri fjármuni inn í hjónabandið og reyndi auk þess að sölsa undir sig eignir hennar að henni látinni. Að sögn indverskra fréttamiðla voru ættingjar Kumars ákærðir fyrir samsæri, en gull í eigu hinnar látnu fannst grafið nálægt heimili hans. Talsverð umræða hefur verið í Indlandi síðustu misseri um notkun eiturslangna í þeim tilgangi að drepa fólk, en erfitt þykir að sýna fram á ásetning í slíkum málum. Meðal annars hafa tveir einstaklingar verið sýknaðir í álíka málum á síðustu árum.
Indland Dýr Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Fleiri fréttir Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Sjá meira