„Þetta er El Clásico“ Anton Ingi Leifsson skrifar 16. nóvember 2020 23:00 Halldór Már Kristmundsson, Dói, er með allt á hreinu hvað varðar Vodafone-deildina. vísir/vilhelm
Það dregur til tíðinda á sunnudagskvöldið er úrslitaleikurinn í Vodafone-deildinni í CS:GO fer fram. Þar mætast Dusty og Hafið. Leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni á Stöð 2 eSport en margir bíða spenntir eftir þessum leik. Einn þeirra er Halldór Már Kristmundsson, sérfræðingur Vodafone-deildarinnar, en Vísir spjallaði við Halldór um stórleikinn. „Þetta er El Clásico rafíþróttusenurnar,“ sagði Halldór og líkti leiknum þar af leiðandi við viðureignir Real Madrid og Barcelona á Spáni. „Þetta eru tvö bestu liðin sem hafa í gegnum tíðina verið að standa í hvort öðru.“ „Dusty hefur alltaf betri en Hafið stendur alltaf í þeim. Við vorum rændir þessum leik í fyrra þegar FH sló út Hafið,“ sagði Halldór svo spennan er enn meiri í ár. En hvernig horfir þessi leikur við Halldóri? „Dusty er talið vera lang besta liðið. Æfa mest, líta best út á blaði en Hafið eru þeir sem eru ekki að æfa jafn mikið en eru hæfileikaríkir.“ Mörg lið innan deildarinnar hræðast Dusty-vígið en það gerir Hafið ekki. „Hafið er liðið sem hræðist ekki Dusty. Hafið tekst alltaf á einhvern ótrúlegan hátt að sigra þá.“ „Veikleikarnir eru andlega hliðin hjá Dusty. Þeim finnst þeir eiga að vera betri, hafa æft meira og þurfa þar af leiðandi að sýna það. Það er þó líka pressa á Hafinu.“ Halldór segir að það sé hægt að búast við þremur kortum á sunnudaginn og leikurinn verður ansi jafn. „Það eiga alltaf eftir að koma þrjú við kort. Við getum búist við spennu og sjá bestu leikmenn landsins spila,“ sagði Halldór. Vísir mun í vikunni hita reglulega upp fyrir úrslitaleikinn með viðtöl við hina ýmsu aðila innan deildarinnar.
Dusty Vodafone-deildin Mest lesið Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Fleiri fréttir Fjölbrautaskóli Suðurlands sigurvegarar Framhaldsskólaleikanna Ungmennamótið í rafíþróttum hafið Fjórða vika Rocket League deildarinnar í fullum gangi í kvöld 6. umferð GR Verk deildarinnar lokið: Tæknilegir örðugleikar í deildinni Sjötta umferð GR Verk deildarinnar í kvöld: Þórsarar í efsta sæti Úrslitin ráðast í kvöld: FSu gefst tækifæri á að hreppa sinn fyrsta FRÍS bikar Mikil spenna í GR Verk deildinni: Þórsarar með stórsigur gegn DUSTY GR Verk deildin heldur áfram í kvöld Þórsarar og Dusty enn jafnir á toppnum Íslenska Rocket League-deildin farin af stað GR Verk-deildin í beinni: Þórsarar enn ósigraðir Fjölbrautaskóli Suðurlands mætir Tækniskólanum í úrslitum FSu og FG keppast um úrslitasæti gegn Tækniskólanum Þórsarar enn ósigraðir á tímabilinu Tækniskólinn kominn í úrslit Framhaldsskólaleikanna Fragg-bræðurnir efna til sumarmóts Sjá meira