Fylgdust undrandi með bílunum bruna yfir gönguljósin á rauðu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. desember 2020 14:49 Klukkan var tuttugu mínútur gengin í níu þegar Haraldur náði brotum ökumannanna á upptöku með bílamyndavél sinni. Þrír ökumenn fóru yfir á rauðu ljósi á Bústaðavegi í morgun. Foreldri í hverfinu sem náði brotum fólksins á myndband hefur áhyggjur af hegðun fólks enda börn reglulega á ferli á leið í og úr skóla eða félagsstarf. Hann segir brotin í morgun alls ekkert einsdæmi.
Haraldur Karlsson er íbúi í Fossvogi og var á leið aftur heim, til heimavinnu eins og svo margur, þegar hann kom að ljósunum. Sjálfur keyrði hann í austurátt og fylgdist með bílum úr vestri fara yfir á rauðu hver á fætur öðrum. Breiðagerðisskóli og Réttaholtsskóli standa ofan við Bústaðaveginn. Fossvogsskóli og íþróttasvæði Víkings eru neðan við götuna. Gönguljósin eru að sögn Haraldar mikið nýtt af börnum til að komast leiðar sinnar. Hann náði myndbandinu klukkan 8:20 í morgun en skólahald hér á landi hefst víða klukkan 8:30. „Did I dream it?“ Haraldur birti myndbandið á Twitter í morgun og sagði enn eitt dæmið um að bílar í borgum væri pæling sem gengi bara ekki upp. 50 gata. Gönguleið nokkur hundruð barna fyrir skóla og íþróttastarf. Svartamyrkur og rigning. Eldrautt ljós.Enn eitt dæmið um að bílar í borgum voru fín pæling sem gekk bara ekki upp. pic.twitter.com/gtKKzUiavA— Haraldur Karlsson (@HaraldurKarls) December 1, 2020 Myndbandið hefur vakið nokkra athygli og Hlynur Hallgrímsson upplýsir að hann hafi verið í bílnum sem kemur úr hinni áttinni og stoppar eftir að nokkrir fóru yfir á rauðu ljósi. „Ég er þarna á síðasta bílnum (þessum sem stoppaði). Var of nývaknaður til að meðtaka þetta almennilega áðan, smá svona "Did I dream it?" stemming, þetta var svo crazy,“ segir Hlynur. „Ég hélt að ljósin væru biluð mín megin þangað til þú stoppaðir. Ég skil ennþá ekki neitt,“ segir Haraldur. Gamlir og háir ljósastaurar Haraldur segir atvikið í morgun ekkert einsdæmi. Hann búi rétt fyrir ofan Bústaðaveginn og fari reglulega þarna yfir með börnum sínum ungum. „Það er lágmark í annaðhvert skipti sem bíll fer yfir á vel rauðu. Jafnvel þótt maður standi þarna með börn, barnavagn eða sleða,“ segir Haraldur. Hann veltir fyrir sér hvort fólk sé niðursokkið í símum sínum eða telji sig bara geta stolið tveimur til þremur sekúndum. Vandamálið sé þó ekki bundið við þessi gönguljós enda víða í borginni þar sem fólk bruni yfir á rauðu, appelsínugulu eða nýrauðu. Hann minnir á ábyrgð ökumanna enda eigi börn og aðrir að geta treyst því að ekki sé ekið yfir þegar gönguljós sýni grænt. Þau eigi ekki að þurfa að horfa því sem næst í augu ökumanna áður en gengið sé yfir. Lýsingin á Bústaðavegi sé auk þess hönnuð fyrir bílaumferð. Gamlir og háir ljósastaurar. Erfitt sé að greina fólk á ferli. Þá líti greinilega margir á Bústaðaveginn sem hálfgerða hraðbraut. Gatan sé breið en hámarkshraði á götunni er 50 kílómetrar á klukkustund.
Reykjavík Umferð Umferðaröryggi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Fleiri fréttir Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Sjá meira